Saumaskrúfa

Varðveitt hjá
Minjasafnið á Akureyri
Svona saumaskrúfa
var undanfari saumavéla. Áhald þetta er úr járni og við notkun skrúfuð
á borðrönd. Efst á áhaldi þessu er nokkurskonar töng með tveimur
örmum og fjöður sem heldur tönginni aftur. Ofan til á tönginni er járnspenna
með járnteini fyrir tvinnakefli
en til hliðar er lítil skál úr járni 3,5 sm í þvermál en í skálina var
límdur nálapúði. Í tangarmunnann sem er kringlóttur og báraður innan, var
fest það sem sauma átti og haldið á móti (t.d. pilsfaldur) og fært fram
eftir því sem vannst. Þá var saumnálin aðalsaumatækið og má því segja að
áhald þetta hafi verið hjálpartæki við saumaskap. Þetta áhald smíðaði Sigurður
sem kallaður var klénsmiður(járnsmiður) handa Guðrúnu Arngrímsdóttur prests
að Bægisá.
Aðrar upplýsingar
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 3375
Stærð
16 x 0 cm
Lengd: 16 cm
Staður
Staður: Fornhagi, 601-Akureyri, Hörgársveit, Hörgárdalur, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munaskrá - MSA
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Saumaskrúfa
Upprunastaður
65°43'46.9"N 18°21'3.7"W
