Brauðsteinn

Varðveitt hjá
Byggðasafnið Skógum
Brauðsteinn og verður aldrei matarlaust hús þar sem hann er varðveittur. Var í eigu móður gefanda Valgerðar Gísladóttur (d.1979) og áður í eigu Ragnhildar Gísladóttur á Loftsstöðum í Flóa (1869-1957) en hún var frá Rauðabergi í Fljótshverfi. Steinninn mun kominn þaðan að austan. Hann er hleiflaga, rauðleitur, um 4 cm. á hæð. Gefið af Bolla Sigurhanssyni í Reykjavík.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: S-1523
Stærð
4 cm
Staður
Staður: Rauðaberg 1, Skaftárhreppur, Fljótshverfi, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Brauðsteinn
Heimildir
Safnskrá Skógasafns. Þ.T. Sjá bók Þórðar Tómassonar, Setið við sagnabrunninn bls 145)

Upprunastaður

63°57'2.5"N 17°37'12.8"W