Laufabrauðsgerð

04.12.2020

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1947)
Ártal
Sent dags: 04.12.2020
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2020-3-141
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg, Reykjavíkurborg
Spurningaskrá / Svör
Gerði fjölskylda þín laufabrauð á æskuárum þínum? Ef svo er, hverjir á heimilinu tóku þátt? Komu aðrir að laufabrauðsgerðinni en heimilisfólkið? Hverjir, ef svo er?
Ég er alin upp í Fljótsdal á Héraði og þar var ekki gert laufabrauð á mínum barnæskuárum. Um fermingu sá ég fyrst laufabrauð, það var á barnasamkomu á Hallormsstað og fyrir þeirri laufabrauðsgerð stóðu tvær norðurþingeyskar konur, búsettar á Hallormsstað.

Fór laufabrauðsgerð sem þú tókst þátt í eingöngu fram á heimili þínu eða á fleiri stöðum? Hvaða stöðum?
Eftir að ég flutti norður á Langanes gerði ég laufabrauð með nágrannakonu minni ýmist heima hjá henni eða mér, í Hlíð eða á Sauðanesi. Allt heimilisfólk tók þátt í þessu.

Hvar og hvernig kynntust foreldrar þínir þessari hefð? Nefndu einnig sveitarfélag og hvort það var í þéttbýli eða til sveita.
Foreldrar mínir fluttu norður á Langanes 1966 og þá kynntust þau því að það verður að baka laufabrauð fyrir jólin og mikið af því.

Var laufabrauðið sem þú þekktir í æsku svipað því sem kallað er laufabrauð í dag? Ef ekki, gætir þú lýst brauðinu sem kallað var laufabrauð í þínu ungdæmi?
Heimatilbúna laufabrauðið á Langanesi var miklu betra en þetta sem nú er selt í búðum, bakað í bakaríum og er oft mjög vont. Langanesfrúrnar bjuggu til deigið sem átti að geymast á köldum stað yfir nótt, síðan flatt út svo þunnt að hægt væri að lesa á bók í gegnum það, skorið undan diski, skreytt með ýmsum útskurði og til þess notaðir vasahnífar og laufabrauðsjárn, breitt vel yfir kökurnar meðan þær biðu steikingar, síðan pikkaðar með gaffli og steiktar í sjóðandi fitu og pressaðar létt með sléttum hlemmi strax þegar þær komu upp úr feitinni. Eftir það mátti stafla þeim í háa stafla og geyma lengi. Það var mest borðað með hangikjöti og sem snakk. Krakkarnir í skólanum smíðuðu stundum laufabrauðshlemma úr krossviði í handmennt og skreyttu þá með jólamyndum. Langanesfrúrnar fengu sér líka mysuost, suðu hann upp með rjóma og smurðu honum á laufabrauðið. Mörgum fannst það alveg ómissandi.

Ef að þú komst ekki að gerð laufabrauðs í æsku en tókst þátt í henni seinna á ævinni, hvaðan og hvenær kom hún inn í líf þitt?
Eins og fram er komið hófst mín laufabrauðsgerð með Elínborgu, nágrannakonu minni í Hlíð, eftir að ég fór að búa á Sauðanesi 1970. Ég var nú mest til aðstoðar, var hálffeimin við þessa stórkostlegu laufabrauðsgerð vinkvenna minna norðurþingeyskra, þetta var ritúal, helgiathöfn og varð að fara eftir ákveðnum reglum. Og þær gátu rætt um þetta fram og aftur, hvernig deigið hefði lukkast, hvernig hefði gengið að breiða út, hverjir hefðu verið í útskurðinum o.fl. Já, ég gleymdi að segja að afskurðurinn sem kom þegar kökurnar voru skornar undan diski, var ekki flattur út aftur heldur geymdur undir yfirbreiðslu, pikkaður og steiktur síðast og svo máttu allir viðstaddir borða það brauð strax.

Býrð þú til laufabrauð í dag? Gerir þú það með fleiri en einum hópi, ef svo er? Hvaða hópum?
Nei, ég bý ekki til laufabrauð í dag, en dætur mínar gera það, líka sú sem býr á Austfjörðum þannig að laufabrauðsgerðin hefur breiðst út.

Kemur þú að gerð laufabrauðs á hverju ári eða hefur þú hugsanlega tekið pásu um lengri eða skemmri tíma? Hvers vegna?
Nei, ég bý ekki nálægt dætrum mínum en myndi annars vera með þeim í bakstrinum. Annars fannst mér laufabrauðsdagurinn erfiður, það er mesta púl að baka laufabrauð allan daginn, ég er orðin of gömul í svoleiðis vinnu.

Er sérstakur dagur og tími tekinn frá fyrir laufabrauðið? Hvernig er hann valinn? Er gert laufabrauð á öðrum tímum árs en fyrir jólin? Ef svo er, hvenær og við hvaða tækifæri?
Já, það þarf að ákveða dag sem öllum hentar sem ætla að vera með. Laufabrauðið geymist vel og fínt að klára það frá snemma á jólaföstunni. Það tilheyrir fyrst og fremst jólunum en er stundum líka bakað fyrir þorrablót norðanlands.

Hvaða hugmyndir hefur þú um útbreiðslu laufabrauðs í dag? Finnst þér að hún hafi farið vaxandi eða minnkandi á síðustu 20-30 árum eða stendur hún kannski í stað?
Ég veit ekki. Kjaftaskarnir í útvarpinu eru farnir að tala mikið fyrir hönd þjóðarinnar, þjóðin gerir hitt og þetta fyrir jólin og þetta og hitt er hefð, það á allt mögulegt að vera hefð eftir því sem blaðurvaðallinn segir. Mig grunar að oft séu þetta dulbúnar auglýsingar. Ég hef ekki trú á því að "öll þjóðin" baki laufabrauð fyrir jólin. Það er bæði erfitt og tímafrekt. Og vandasamt ef það á að verða gott. Ég býst við að margir kaupi tilbúið laufabrauð í plastdósum, þó að það sé næstum óætt, en þeir sem virkilega hafa alvöru laufabrauðsdag eru Norðlendingar/Þingeyingar og afkomendur þeirra sem hafa sérstakt laufabrauðsgen og víla ekki fyrir sér vinnuna og tímann sem fer í alvöru laufabrauðsgerð. Og þar sem fjöldi þeirra er fluttur suður þá hefur laufabrauðsgerð örugglega farið vaxandi á höfuðborgarsvæðinu.

Hvaða áhrif hefur COVID-19 á laufabrauðsgerð þína? Koma vídeó-símtöl á netinu, eins og t.d. á Facebook, hugsanlega við sögu? Getur þú sagt frá þessu, ef svo er?
Engin áhrif.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Laufabrauðsgerð
Efnisorð:
Laufabrauð