Aðrar upplýsingar
Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (Aldur ekki skilgreindur)
Ártal
Sent dags: 04.12.2020
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2020-3-96
Spurningaskrá / Svör
Gerði fjölskylda þín laufabrauð á æskuárum þínum? Ef svo er, hverjir á heimilinu tóku þátt? Komu aðrir að laufabrauðsgerðinni en heimilisfólkið? Hverjir, ef svo er?
Já fjölskyldan gerði laufabrauð saman þ.e. foreldrar mínir og bræður.
Fór laufabrauðsgerð sem þú tókst þátt í eingöngu fram á heimili þínu eða á fleiri stöðum? Hvaða stöðum?
Eingöngu á mínu heimili.
Hvar og hvernig kynntust foreldrar þínir þessari hefð? Nefndu einnig sveitarfélag og hvort það var í þéttbýli eða til sveita.
Foreldar mínir ólust upp við laufabrauðsgerð í Eyjafyrði og austur á héraði.
Var laufabrauðið sem þú þekktir í æsku svipað því sem kallað er laufabrauð í dag? Ef ekki, gætir þú lýst brauðinu sem kallað var laufabrauð í þínu ungdæmi?
Já það er mjög svipað en var samt alltaf flatt út á heimilinu og þurfti að vera þunnt, það þunnt að munstrið í eldhúsbekkjunum sæist í gegn.
Býrð þú til laufabrauð í dag? Gerir þú það með fleiri en einum hópi, ef svo er? Hvaða hópum?
Ég er alfarið farin að kaupa útflattar kökur núna síðustu árin. Ég geri laufabrauð bara með einum hópi og eru það allir afkomendur sem komast hverju sinni.
Kemur þú að gerð laufabrauðs á hverju ári eða hefur þú hugsanlega tekið pásu um lengri eða skemmri tíma? Hvers vegna?
Nei hef aldrei tekið pásu frá laufabrauðsgerð.
Er sérstakur dagur og tími tekinn frá fyrir laufabrauðið? Hvernig er hann valinn? Er gert laufabrauð á öðrum tímum árs en fyrir jólin? Ef svo er, hvenær og við hvaða tækifæri?
Í sjálfu sér er það ekki neinn sérstakur dagur. Of var verið að miða við að allir væru búnir í prófum þegar laufabrauðsgerðin fer fram. Stundum er valinn sami dagur og jólasveinarnir koma á "kaupfélagssvalirnar". Nei laufabrauð er aðeins gert fyrir jólin.
Hvaða hugmyndir hefur þú um útbreiðslu laufabrauðs í dag? Finnst þér að hún hafi farið vaxandi eða minnkandi á síðustu 20-30 árum eða stendur hún kannski í stað?
Ég held að útbreiðslan hafi aukist eftir að hægt var að kaupa útflatt laufabrauð í bakaríum.
Hvaða áhrif hefur COVID-19 á laufabrauðsgerð þína? Koma vídeó-símtöl á netinu, eins og t.d. á Facebook, hugsanlega við sögu? Getur þú sagt frá þessu, ef svo er?
Veit það ekki alveg en líklegast verður laufabrauðsgerð með sama sniði og venjulega.
Eru einhverjir sem halda utan um daginn eða sjá til þess að nóg sé af öllum áhöldum og öðru sem til þarf? Hverjir, ef svo er?
Ég sé um að halda laufabrauðsgerðina og passa upp á áhöld og að hafa mat fyrir alla í leiðinni.
Búið þið til deig sjálf eða kaupið þið það tilbúið og fletjið út? Kaupið þið útflattar kökur?
Kaupum útflatta kökur.
Hvaða korntegundir eða hugsanlega blöndu af þeim notið þið í deigið? Hvaða önnur hráefni eru notuð?
Langoftast bara hveiti en hef þó prófað bæði heilhveiti og rúgmjöl. Hveitið þó best.
Hverjir búa til deigið? Þekkist kynja- eða verkaskipting við að hnoða og fletja deigið? Segðu frá því, ef svo er.
Ég ólst upp við að mamma gerði deigið og flatti út. Hún skar sjaldan út í kökurnar. Á meðan ég gerði deigið sjálf þá var sami háttur á hjá mér.
Hvaða áhöld og annan útbúnað notar þú við laufabrauðsskurðinn? Segðu frá því og hvaða hlutverki þau gegna.
Við notum alltaf laufabrauðsjárn. Á meðan ég ólst upp þá var það líka þannig því amma sem var fædd 1900, átti laufabrauðsjárn og við fengum það alltaf lánað. Pabbi var hinsvegar mjög flinkur að skera út með hníf. Við höfum aðeins verið að leika okkur með það líka.
Eiga eldri áhöldin sér sögu? Hafa einhver þeirra t.d. erfst á milli kynslóða? Hvaða áhöld, ef svo er? Hver átti þau fyrst?
Ég er með laufabrausjárn sem við keyptum á fyrstu árum búskapar okkar um ca 1980.
Hvaða munstur skerð þú helst út? Ber útskurðurinn eða munstrin sem þú notar einhver heiti? Hvaða heiti? Er eitthvað sem þér finnst að eigi ekki að skera út í laufabrauð? Hvað og hvers vegna, ef svo er?
Stjarna 3 strik jólatré Stafurinn V (það er svo gott að brjóta kökuna í hæfilega parta þegar verið er borða þær)
Hvað ræður því helst hvað þú skerð út? Skipta hefðir máli í þessu sambandi eða hvaðan færð þú hugmyndirnar? Vilt þú nostra við útskurðinn, gera flókin mynstur eða vera fljótur vegna þess að það eru margar kökur sem þarf að skera út?
Hér gildir eiginlega bæði. Nostra við sumar kökur og rubba öðrum af.
Er eitthvað sem þér finnst skemmtilegra eða leiðinlegra að skera út en annað? Hvað, ef svo er? Eða er þetta kannski alveg hlutlaust?
Alltaf gaman að gera fallega stjörnu.
Hvað skera aðrir út í þínum hópi? Er það á einhvern hátt frábrugðið því sem þú gerir?
Það fer nú dálítið eftir aldri og þroska.
Hver kenndi þér að skera út? Hefur þú kennt einhverjum útskurð? Hverjum?
Ég lærði af foreldrum mínum, kannski mest af pabba. Já ég hef kennt mínum afkomendum.
Hverjir sjá um að skera út? Geta allir tekið þátt, börn líka?
Allir sem ráða við það í fjölskyldunni.
Hvaða áhöld og annað sem til þarf er notað við steikinguna? Segðu frá þeim og hvaða hlutverki þau gegna.
Það þarf góðan pott, fiskispaða og laufabrauðshlemm til að pressa lauslega. Gott að hafa vel af eldhúspappír undir til að fitan leki vel af.
Hafa orðið einhverjar breytingar á því hvaða útbúnaður er notaður? Hvaða breytingar, ef svo er?
Nei þetta hefur nú verið svipað.
Upp úr hverju er brauðið steikt og hve lengi? Hvað eru búnar til margar kökur? Er afskurðurinn steiktur?
Já afskurðurinn er steiktur. Steikt upp úr steikarfeiti, stundum blandað með tólg eða olíu. Við erum í ár að gera 100 kökur sem dreifast á nokkur heimili.
Er laufabrauðið pressað eftir að búið er að steikja það? Með hverju er pressað? Ef að það er ekki pressað, hvað er gert við brauðið þegar það kemur upp úr pottinum?
Já pressa það lauslega með laufabrauðshlemm sem við fengum gefins frá laghentum gömlum manni í götunni okkar fyrir ca 32 árum.
Segðu frá því hvernig brauðinu er pakkað inn og gengið frá því til geymslu.
Ég set pappaspjald í botninn á poka og svo 10 til 15 kökur ofaná. Bind fyrir pokana með krullubandi.
Eftir hvaða reglum er laufabrauðinu skipt á milli fólks? Hvað fá menn venjulega margar kökur í sinn hlut?
Það fer bara eftir óskum fólks um fjölda. Þetta eru svona 10-25 kökur á heimili núorðið. Reyni svolítið að velja stafi barnanna í poka hvers heimilis.
Hvað tekur vinnan við laufabrauðið langan tíma, frá upphafi til enda?
Með mat og allri samverunni og þar til búið er að steikja er ca 6 tímar.
Hverjir sjá um að steikja og ganga frá kökunum? Er kynja- eða verkaskipting við þetta? Getur þú sagt frá því?
Við hjónin (elsta fólkið 63 og 60 ára) sjáum alltaf um það. Stundum erum við að steikja eftir að aðrir fara því það er mikið af litlum börnum í fjölskyldunni.
Laufabrauð er mest borðað um jólin, eins og allir þekkja, en hvenær er byrjað að smakka á því?
Afskurðurinn er borðaður strax en síðan er brauðið lítið smakkað til jóla en kemur þó fyrir.
Með hverju þykir þér best að borða laufabrauð?
Best að borða það með hangikjötinu og líka því sem er borðað á aðfangadagskvöld sem er aðeins breytilegt. Á þriðja í jólum er alltaf soðin ýsa með laufabrauði.... mjög gott.
Borðar þú, eða fólk sem þú þekkir, laufabrauð með einhverju sem talist gæti óhefðbundið meðlæti? Ef svo er, hvað er hér helst um að ræða?
Laufabrauð með reyktum silung t.d.
Hvernig kökur þykja ykkur bestar? Nefnið hráefni o.fl.
Bestar með miklu kúmeni.
Hvað endist þinn laufabrauðsskammtur lengi? Hvað er gert við afganginn frá jólunum?
Endist fram á nýársdag og stundum fram á þrettándann.
Hvenær og hvernig er afskurðarins neytt? Hvaða heiti þekkir þú á honum?
Afskurður borðaður strax.
Kaupir þú tilbúið laufabrauð í búðum eða bakaríum? Frá hvaða aðila er besta brauðið að þínu mati?
Kaupi tilbúið frá bakaríum. Besta brauðið: Aðalbakaríið á Siglufirði Axelsbakarí Ak Bakaríið við brúna Ak.

Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti