Koddaver
1957

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Nemendavinna úr Melaskóla 1957. Útsaumað koddaver. Áteiknað munstur saumað með hvítu í hvítt bómullarefni. Útsaumurinn er frekar grófgerður. Útsaumsspor: Leggsaumur (kontorstingur, varpleggur) og flatsaumur. Fangamarkið HBJ er saumað með flatsaumi. Saumuð er lína á réttunni í saumavél, 3 sm. frá brún koddaversins sem myndar kant á þrjá vegu. Faldurinn að neðan er handsaumaður og á honum eru þrjú handgerð hnappagöt. Tvær tautölur (ein dottin af). Koddaverið hefur verið mikið notað sem sést t.d. á tautölunum þar sem efnið hefur eyðst og málmurinn er eftir.
Samkvæmt drögum að námskrá frá 1948.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1957
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-101-12
Staður
Staður: Melaskóli, Hagamelur 1, 107-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Vesturbær, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Upprunastaður
64°8'33.7"N 21°57'25.3"W
