Koddaver

1957
In preservation at
Reykjavík City Museum
Nemendavinna úr Melaskóla 1957. Útsaumað koddaver. Áteiknað munstur saumað með hvítu í hvítt bómullarefni. Útsaumurinn er frekar grófgerður. Útsaumsspor: Leggsaumur (kontorstingur, varpleggur) og flatsaumur. Fangamarkið HBJ er saumað með flatsaumi. Saumuð er lína á réttunni í saumavél, 3 sm. frá brún koddaversins sem myndar kant á þrjá vegu. Faldurinn að neðan er handsaumaður og á honum eru þrjú handgerð hnappagöt. Tvær tautölur (ein dottin af). Koddaverið hefur verið mikið notað sem sést t.d. á tautölunum þar sem efnið hefur eyðst og málmurinn er eftir. Samkvæmt drögum að námskrá frá 1948. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla. 

Main information

Dating
1957
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2017-101-12
Place
Staður: Melaskóli, Hagamelur 1, 107-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Vesturbær, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Keywords
Keyword: Koddaver
Keyword:
Skólahandavinna

Place of origin

64°8'33.7"N 21°57'25.3"W