Prufuklútur
1930 - 1932

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Prufuklútur. Nemendavinna úr Miðbæjarskóla í kringum 1930.
Prufuklútur (útsaumsprufa). Efst á prufunni er fangamarkið KJ. 3. A 1930, saumað með krosssaumi. Þar fyrir neðan koma margar útsaumslínur. Útsaumssporin talin upp í réttri röð, ofan frá.
Breiður útsaumsbekkur saumaður með beinum sporum og augnsaumi.
Breiður krosssaumsbekkur.
Tvöfalt klóspor.
Mjór krosssaumsbekkur.
Mjór munsturbekkur, saumaður með beinum sporum og skásporum.
Holbeinssaumur.
Demantspor.
Holbeinssaumur.
Klóspor.
Fjaðraspor.
Krókspor (hexistingur).
Tunguspor (kappmelluspor).
Þræðispor.
Afturstingur.
Leggsaumur (kontorstingur, varpleggur).
Afturstingur.
Þræðispor.
Tunguspor (kappmelluspor).
Athugið: Krosssaumssporin snúa ekki öll í sömu átt eins og venjan er. Sjá rönguna.
Prufan er földuð að ofan og að neðan með gatafaldi. Hliðar eru bryddaðar með mjóu bómullarbandi (bendlabandi). Lagt er niður við bryddinguna í höndum á röngunni.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Þórleif Drífa Jónsdóttir
Kristjana Jónsdóttir, Hlutinn gerði
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Kristjana Jónsdóttir, Hlutinn gerði
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Titill
Sérheiti: Prufuklútur
Ártal
1930 - 1932
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-49-1
Staður
Staður: Miðbæjarskólinn, Fríkirkjuvegur 1, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Miðbærinn, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Upprunastaður
64°8'42.0"N 21°56'20.8"W
