Prufuklútur

1930 - 1932
In preservation at
Reykjavík City Museum
Prufuklútur. Nemendavinna úr Miðbæjarskóla í kringum 1930. Prufuklútur (útsaumsprufa). Efst á prufunni er fangamarkið KJ. 3. A 1930, saumað með krosssaumi. Þar fyrir neðan koma margar útsaumslínur. Útsaumssporin talin upp í réttri röð, ofan frá. Breiður útsaumsbekkur saumaður með beinum sporum og augnsaumi. Breiður krosssaumsbekkur. Tvöfalt klóspor. Mjór krosssaumsbekkur. Mjór munsturbekkur, saumaður með beinum sporum og skásporum. Holbeinssaumur. Demantspor. Holbeinssaumur. Klóspor. Fjaðraspor. Krókspor (hexistingur). Tunguspor (kappmelluspor). Þræðispor. Afturstingur. Leggsaumur (kontorstingur, varpleggur). Afturstingur. Þræðispor. Tunguspor (kappmelluspor). Athugið: Krosssaumssporin snúa ekki öll í sömu átt eins og venjan er. Sjá rönguna. Prufan er földuð að ofan og að neðan með gatafaldi. Hliðar eru bryddaðar með mjóu bómullarbandi (bendlabandi). Lagt er niður við bryddinguna í höndum á röngunni. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.

Main information

Title
Proper noun: Prufuklútur
Dating
1930 - 1932
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2017-49-1
Place
Staður: Miðbæjarskólinn, Fríkirkjuvegur 1, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Miðbærinn, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll

Place of origin

64°8'42.0"N 21°56'20.8"W