Hnýting sýnishorn
1972 - 1982

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Sýnishorn kennara fyrir kennslu á námskeiðum í hnýtingum (macramé) frá 1972-1982. Þrjú blómahengi, skraut, innkaupanet og veggskraut.
a) Blómahengi (rautt). Unnið úr júta þræði. Mjög einfalt.
Aðferð: Flatur hnútur (riff hnútur). Bundið saman að neðan, endarnir mynda kögur.
b) Blómahengi (ljóst). Unnið úr grófum bómullarþræði. Skreytt með horn- eða beinabútum. Aðferð: Flatur hnútur (riff hnútur) og skutulsbragð. Dregið saman að neðan, endarnir mynda kögur. Einfaldir hnútar eru hnýttir á kögrið hér og þar.
c) Blómahengi (ryðbrúnt). Unnið úr júta þræði. Aðferð: Flatur hnútur (riff hnútur), keðjuhnútur og spíralhnútur. Dregið saman að neðan. Stuttir endar mynda lítinn skúf.
d) Skraut sem hangir úr lofti (blátt). Unnið úr bómullarþræði. Aðferð: Flatur hnútur (riff hnútur) með litlum hnútum (nefnast hnökrar), spíralhnútur og keðjuhnútur. Járnhringur hnýttur miðsvæðis í hengið. Tréperlur þræddar inn á milli.
e) Innkaupanet (beinhvítt). Unnið úr bómullarþræði. Aðferð: Flatur hnútur (riff hnútur).
f) Hjartalagað veggskraut (jólaskraut). Unnið úr sísal snæri. Flatur hnútur (riff hnútur). Skúfur í miðju hjartaformi.
Hnýtingar (macramé), ýmsar aðferðir í hnútagerð. Hnýtingar voru mjög vinsælar upp úr 1970 og fram yfir 1980. Haldin voru fjölmörg námskeið í hinum ýmsu aðferðum hnútagerðar. Verkefnin voru fjölbreytt. Dæmi: Gluggahengi, blómahengi, lampaskermar, myndir, veggskraut, töskur, belti, skartgripir o.fl. Námskeið í hnýtingum voru mjög vinsæl handverksnámskeið á þessum tíma og sumir töluðu um hnýtingaæði.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Aðrar upplýsingar
Þórleif Drífa Jónsdóttir, Hlutinn gerði
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Titill
Sérheiti: Hnýting sýnishorn
Ártal
1972 - 1982
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-49-15
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti











