Hnýting sýnishorn

1972 - 1982
In preservation at
Reykjavík City Museum
Sýnishorn kennara fyrir kennslu á námskeiðum í hnýtingum (macramé) frá 1972-1982. Þrjú blómahengi, skraut, innkaupanet og veggskraut. a)  Blómahengi (rautt). Unnið úr júta þræði. Mjög einfalt. Aðferð: Flatur hnútur (riff hnútur). Bundið saman að neðan, endarnir mynda kögur. b)  Blómahengi (ljóst). Unnið úr grófum bómullarþræði. Skreytt með horn- eða beinabútum. Aðferð: Flatur hnútur (riff hnútur) og skutulsbragð. Dregið saman að neðan, endarnir mynda kögur. Einfaldir hnútar eru hnýttir á kögrið hér og þar. c)  Blómahengi (ryðbrúnt). Unnið úr júta þræði. Aðferð: Flatur hnútur (riff hnútur), keðjuhnútur og spíralhnútur. Dregið saman að neðan. Stuttir endar mynda lítinn skúf. d)  Skraut sem hangir úr lofti (blátt). Unnið úr bómullarþræði. Aðferð: Flatur hnútur (riff hnútur) með litlum hnútum (nefnast hnökrar), spíralhnútur og keðjuhnútur. Járnhringur hnýttur miðsvæðis í hengið. Tréperlur þræddar inn á milli. e) Innkaupanet (beinhvítt). Unnið úr bómullarþræði. Aðferð: Flatur hnútur (riff hnútur). f)   Hjartalagað veggskraut (jólaskraut). Unnið úr sísal snæri. Flatur hnútur (riff hnútur). Skúfur í miðju hjartaformi. Hnýtingar (macramé), ýmsar aðferðir í hnútagerð. Hnýtingar voru mjög vinsælar upp úr 1970 og fram yfir 1980. Haldin voru fjölmörg námskeið í hinum ýmsu aðferðum hnútagerðar. Verkefnin voru fjölbreytt. Dæmi: Gluggahengi, blómahengi, lampaskermar, myndir, veggskraut, töskur, belti, skartgripir o.fl. Námskeið í hnýtingum voru mjög vinsæl handverksnámskeið á þessum tíma og sumir töluðu um hnýtingaæði.  Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.

Main information

Title
Proper noun: Hnýting sýnishorn
Dating
1972 - 1982
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2017-49-15
Record type
Collection
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Keywords
Keyword: Hnýting
Keyword:
Skólahandavinna