Ljóð

Innrammað kvæðabréf til Ólafs skipstjóra Sigurðssonar og konu hans við komu hennar til landsins 1911, eftir Eyjólf Stefánsson. . Skrautskrifað í rauðu og svörtu. Nöfnin skrifuð með gyllingu. Rammað inn í eikarramma með gyllingu.   Um sumardaga skreið hér skip að landi, Það skipið færði einkavininn þinn sem er þér helgu bundinn ástarbandi og bernskustaðinn yfirgefur sinn og með þér búa býst á þinni grundu við bjartan dag og vetrar norðurljós. Því flyt ég ykkur ósk um þessa stundu Að ykkur fagni sérhver landsins rós.   Og verið bæði velkomin að landi En vorsins prýði ljómi hvert við spor Og báran sú sem berst að lágum sandi Hún boði ykkar hjörtum von og þor. Þú þekkir vinur alla ættlands hagi Og annt því heitt, þú sýnir að í raun Það bjóði þér því blóm af öllu tagi Og blessun veiti þér og sigurlaun.   Frá Eyjólfi Stefánssyni og börnunum hans

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: BSH-1002
Stærð
0 x 31 x 37 cm Breidd: 31 Hæð: 37 cm
Staður
Staður: Norska húsið, Hafnargata 5, 340-Stykkishólmi, Sveitarfélagið Stykkishólmur, Stykkishólmur, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ljóð
Efnisorð:
Rammi, m.a. um mynd
Heimildir
Sigrún Ásta Jónsdóttir

Upprunastaður

65°4'37.9"N 22°43'36.9"W