Rakhnífur

1880 - 1920
Rakhnífur. Blaðið er úr stáli og haldið úr beini. Lengd alls (útdregið) 24 cm. Haldlengd 13,5 cm. Skaftið er þunnt, tvöfalt. Önnur hliðin er slétt og hin útskorin. Útskurðurinn sýnir kvenmann sem vafin er í slæðu og teygir sig upp til blóma. Á blaðinu stendur: The electric Racor MADE IN GERMANY. Gefandi er Andrési Valberg. Hann segir svo frá: ,,Þegar ég var staddur í húsi Stefáns G. Stefánssonar í Canada 1979 tók ég mér minjagripi úr hálfföllnu húsinu, sem nú er búið að endurbyggja. Minjagripirnir voru leirmoli sem var á milli bitanna og fúin spýtuflís sem ég sleit úr loftbita en í þeim bita var sprunga sem hafði að geyma rakhníf skáldsins fræga. Ekki get ég sannað að þarna sé rakhnífur Stefáns G. er það getur heldur enginn afsannað það,  svo ég held því fram safninu til hagsbótar." Rakhnífar voru notaðir fram yfir miðja 20. öld. Þeir voru brýndir með sérstöku hörðu fíngerðu brýni. Steinninn í því var kallaður ,,hein" eða ,,heiðn". Menn sápuðu andlit sín með sérstökum skeggburstum með raksápu.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1880 - 1920
Safnnúmer
Safnnúmer A: Bsk-2088 Safnnúmer B: 1997-61
Stærð
24 x 0 cm Lengd: 24 cm
Staður
Staður: Kálfárdalur, 551-Sauðárkróki, Skagafjörður, Gönguskörð, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Rakhnífur

Upprunastaður

65°43'33.5"N 19°47'38.5"W