Rakhnífur
1880 - 1920

In preservation at
Skagafjörður Heritage Museum
Rakhnífur. Blaðið er úr stáli og haldið úr beini. Lengd alls (útdregið) 24 cm. Haldlengd 13,5 cm. Skaftið er þunnt, tvöfalt. Önnur hliðin er slétt og hin útskorin. Útskurðurinn sýnir kvenmann sem vafin er í slæðu og teygir sig upp til blóma. Á blaðinu stendur: The electric Racor MADE IN GERMANY.
Gefandi er Andrési Valberg. Hann segir svo frá: ,,Þegar ég var staddur í húsi Stefáns G. Stefánssonar í Canada 1979 tók ég mér minjagripi úr hálfföllnu húsinu, sem nú er búið að endurbyggja. Minjagripirnir voru leirmoli sem var á milli bitanna og fúin spýtuflís sem ég sleit úr loftbita en í þeim bita var sprunga sem hafði að geyma rakhníf skáldsins fræga. Ekki get ég sannað að þarna sé rakhnífur Stefáns G. er það getur heldur enginn afsannað það, svo ég held því fram safninu til hagsbótar."
Rakhnífar voru notaðir fram yfir miðja 20. öld. Þeir voru brýndir með sérstöku hörðu fíngerðu brýni. Steinninn í því var kallaður ,,hein" eða ,,heiðn". Menn sápuðu andlit sín með sérstökum skeggburstum með raksápu.
Main information
Dating
1880 - 1920
Material
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: Bsk-2088
"Museumnumber b": 1997-61
Dimensions
24 x 0 cm
Lengd: 24 cm
Place
Staður: Kálfárdalur, 551-Sauðárkróki, Skagafjörður, Gönguskörð, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Rakhnífur
Place of origin
65°43'33.5"N 19°47'38.5"W
