Lítill dúlur
1958 - 1962

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Lítill dúkur. Nemendavinna úr Miðbæjarskóla, 1957-1958. Útsaumssporin mynda þéttan munsturbekk eftir miðju. Útsaumsspor frá hlið að miðju: Ídregið þrefalt þræðispor, leggsaumur (kontorstingur, varpleggur), afturstingur, tvær línur af þræðispori, krosssaumur og lykkjuspor. Síðan koma 4 línur með oddaspori að miðju dúksins. Munstrið speglast hinum megin við miðjuna. Í kringum dúkinn er saumað tunguspor (kappmelluspor) og efnið rakið upp að saumsporinu til að mynda kögur. Á endunum er kögrið breiðara. Stærð: 36 x 23 sm.
Handavinnukennari Kristínar í Miðbæjarskólanum var Guðrún Sigurðardóttir, F.15.7.1905. D.15.7.1995. Við bendum á fróðlega grein sem Guðrún skrifaði í tímarit Heimilisiðnaðarfélags Íslands, Hugur og hönd árið 1983. Þar skrifar hún um handavinnukennslu í Barnaskóla Reykjavíkur, Miðbæjarskólanum, en hún kenndi við skólann frá 1930-1969.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Aðrar upplýsingar
Kristín Þórðardóttir, Hlutinn gerði
Gefandi: Kristín Þórðardóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Gefandi: Kristín Þórðardóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Titill
Sérheiti: Lítill dúlur
Ártal
1958 - 1962
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-30-4
Stærð
0 x 23 x 36 cm
Breidd: 23 Hæð: 36 cm
Staður
Staður: Miðbæjarskólinn, Fríkirkjuvegur 1, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Miðbærinn, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Skólahandavinna
Upprunastaður
64°8'42.0"N 21°56'20.8"W


