Lítill dúlur

1958 - 1962
In preservation at
Reykjavík City Museum
Lítill dúkur. Nemendavinna úr Miðbæjarskóla, 1957-1958. Útsaumssporin mynda þéttan munsturbekk eftir miðju. Útsaumsspor frá hlið að miðju: Ídregið þrefalt þræðispor, leggsaumur (kontorstingur, varpleggur), afturstingur, tvær línur af þræðispori, krosssaumur og lykkjuspor. Síðan koma 4 línur með oddaspori að miðju dúksins. Munstrið speglast hinum megin við miðjuna. Í kringum dúkinn er saumað tunguspor (kappmelluspor) og efnið rakið upp að saumsporinu til að mynda kögur. Á endunum er kögrið breiðara. Stærð: 36 x 23 sm. Handavinnukennari Kristínar í Miðbæjarskólanum var Guðrún Sigurðardóttir, F.15.7.1905. D.15.7.1995. Við bendum á fróðlega grein sem Guðrún skrifaði í tímarit Heimilisiðnaðarfélags Íslands, Hugur og hönd árið 1983. Þar skrifar hún um handavinnukennslu í Barnaskóla Reykjavíkur, Miðbæjarskólanum, en hún kenndi við skólann frá 1930-1969. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla. 

Main information

Title
Proper noun: Lítill dúlur
Dating
1958 - 1962
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2017-30-4
Dimensions
0 x 23 x 36 cm Breidd: 23 Hæð: 36 cm
Place
Staður: Miðbæjarskólinn, Fríkirkjuvegur 1, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Miðbærinn, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Keywords

Place of origin

64°8'42.0"N 21°56'20.8"W