Kona

01.01.1848 - 01.01.1855
Kristjana Sigurðardóttir. Daguerreótýpa. Barst upplímd á sporöskjulaga kartoni sem greinilega hafði verið í ramma en ramminn var horfinn. Myndin er hálfmynd. Ung kona í kjól með hvítum lausum kraga og hvítum líningum á ermum. Neðan við kragann er hún með nælu. Hún hvílir aðra  hendi á borði. Myndin er illa farin vegna þess að hún var lengi óvarin og súrefni komst að henni þannig að hún hefur dökknað. Aftan á kartonið er skrifað nafnið Kristjana Sigurdar. Myndin var viðgerð af Karen Brynjolf Pedersen á danska þjóðminjasafninu árið 2005. Viðgerðin fólst í því að bursta laust ryk af myndinni og setja hana í loftþéttan ramma, gler og hvítt karton með svörtu límbandi á köntum.

Aðrar upplýsingar

Ártal
01.01.1848 - 01.01.1855
Safnnúmer
Safnnúmer A: Mms Safnnúmer B: 1999-192
Stærð
12.5 x 10 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Mannamyndasafn (Mms)
Efnisorð / Heiti
Myndefni: Kona