Heimilisfólk
1898

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Reyðarvatn í Rangárvallahreppi - Íbúðarhús og heimilisfólk.
Íbúðarhús, heimilisfólk, karlmaður, konur, strákur, stelpa, hestur.
„Ég hef verið að lesa bók Frank Ponzi “Ísland Howells-Howell’s Iceland,” þar sem þessi mynd af heimilisfólki Reyðarvatns er birt, en ég er ættaður þaðan í beinan karllegg og sá sem stendur þarna í dyragættinni er því langafi minn Tómas Böðvarsson (1854-1935) ásamt eiginkonu hans, og uppeldismóður afa míns Tómasar Tómassonar, henni Guðrúnu Árnadóttur (1857-1931), sem stendur við hina dyragáttina.
“Á leiðinni að Heklu fór ferðafólki aftur yfir Markarfljót og kom öðru sinni að Stórólfshvoli áður en það hélt áfram förinni að Reyðarvatni.
Reyðarvatn var þá fastur áningarstaður ferðamanna. Á myndinni sést heimafólkið reiðubúið að taka á móti ferðafólki sem væntanlegt er til hádegisverðar. Bóndinn Tómas Böðvarsson (46 ára) stendur í bæjardyrum með kúluhatt að heldri manna sið og virðulegan Dannebrogskrossinn nældan á brjóstið. Kona hans Guðrún Árnadóttir (43 ára), ber sparihöfuðbúnað kvenna, skotthúfu með silfurhólk, eins og konurnar sem sitja hægra megin á myndinni, en ein þeirra er 17 ára gömul dóttir hjónanna, Guðrún að nafni. Þrjú af fjórum börnum þeirra eru á myndinni, hestastrákurinn er annaðhvort Böðvar (14 ára) ellegar Árni (13 ára), en feimin stúlka, Árný Ingibjörg (9 ára) stendur þétt við hlið móður sinnar. Hvorug konan talaði tungumál hinnar, svo að þær notuðu merkjamál sín í milli og þannig gat frú von Thiel áttað sig á ætterni barnanna sem seinna birtust á bænum.” (Ponzi, 2004, bls. 75-76) (ÁT 2026)
Aðrar upplýsingar
Ártal
1898
Safnnúmer
Safnnúmer A: FWH-103
Staður
Staður: Reyðarvatn, 851-Hellu, Rangárþing ytra
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Frederick W W Howell (FWH)
Flokkun
Efnisorð / Heiti
Tökustaður
Reyðarvatn
Upprunastaður
63°51'14.6"N 20°9'23.6"W
