Upphlutur

1920 - 1930
Upphlutur ásamt skyrtu ,sanlitri svuntu og annarri ljósleitri ,pilsi (ekki ýkja gömlu, belti og skotthúfu með skúfhólki. Upphlutinn átti Ólafía Ingibjörg Klemensdóttir (f.14 nóv.1870) frá Móum á Kjalarnesi ,móðursystir gefanda. Ólafía var um 1930 hjúkrunarkona á Akranesi um nokkurt árabil. Hún lét sauma upphlutinn ,trúlega í Reykjavík, fyrir Alþingishátiðina 1930 ,en þá var hún viðstödd hátíðarhöldin á Þingvöllum. Upphlutinn átti hún allt til dauðadags ,en hún andaðist á Elliheimilinu í Skjaldarvík. Við fráfall hennar kom upphluturinn í erfðahlut gefanda. Gefandi Ragnheiður Björnsdóttir, Vestribakka á Akranesi.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1920 - 1930
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1983-50-1
Staður
Staður: Móar, 116-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Kjalarnes, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Upphlutur

Upprunastaður

64°12'49.8"N 21°47'3.8"W