Kommóða

1855 - 1920
Kommóða ,frá 19.öld. Átti Ragnhildur Ísleifsdóttir (f.21 feb.1841,d.20 ág.1922) ,húsfreyja í Nýjabæ í Krísuvík, þá gift Þórhalli Þóhallssyni og síðar á Meiðastöðum í Garði og á Innra-Hólmi í Innri-Akraneshreppi (frá 1883) þá gift seinni manni sínum Árna Þorvaldssyni (f.24 maí ,d.3 maí 1901) bónda og oddvita. Um uppruna kommóðunar er ekki vitað nánar ,en hún var aflögð og hætt að nota hana þegar gefandi hirti hana á Innra-Hólmi og fékk Jón Sigurðsson smið á Vindhæli á Akranesi til að lagfæra hana. Kommóðan er úr eik og furu. Fjalir í baki og skúffur (4) eru úr eik ,nema forstykkin úr furu, þó spónlögð að innanverðu. Vantar botn í eina skúffu.Tvær efstu skúffur og neðsta skúffan eru skráarlæstar og forstykki efstu og neðstu skúffu eru yfirfelld. Allar höldur eru frá seinni tíma (klastur).Tveir koparlyklar á lyklahring fylgja. Kommóðan er í raun jafnframt snyrtiborð því í efstu skúffu hafa verið innréttuð 9 hólf , eitt stórt fyrir miðju með spegli (sporöskjulöguðum) á innaverðu loki og 4 hólf til hvorrar handar með spónlögðum eikarlokum, birkispónn með innfelldum mahogny-skreytingum. Kommóðan hefur að öllum líkindum verið ómáluð í upphafi ,en síðar bleikmáluð og síðast í brúnum lit.Gef: Jón Mýrdal Sigurðsson fv.skipasmiður, Stekkjarholti 20 á Akranesi

Aðrar upplýsingar

Ártal
1855 - 1920
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1990-37-1
Staður
Staður: Innri-Hólmur, 301-Akranes, Hvalfjarðarsveit, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Kommóða

Upprunastaður

64°18'19.9"N 21°55'48.9"W