Handavinnupoki

1939
Handavinnupoki sem Guðríður saumaði 9 ára gömul í Miðbæjarskóla. Pokinn er allur handsaumaður. Hann er úr hvítu þéttofnu bómullarefni sem gæti verið hveitipokaefni. Að framan er mynd af stelpu í víðu pilsi sem minnir á fatnað frá Mið Evrópu. Munstrið fékk Guðríður sent frá ömmu sinni í Ameríku, en Jónína segir að amman hafi oft sent þeim munstur á transfer pappír (pappír með munstri sem hægt er að strauja á efni). Útsaumurinn er sérlega fallega unninn, mjög fíngerður og sporin jöfn. Á bakhlið pokans er fangamarkið GÞ saumað með útsaumi. Útlínur stafanna eru saumaðar með fíngerðum leggsaumi (kontorstingur, varpleggur), en inn í stafina er saumað ídregið krókspor í sömu spor og leggsaumurinn. Ídregið krókspor er einnig saumað til beggja hliða eftir endilöngum pokanum. Brotið er inn af faldinum á hliðum og hann saumaður niður í höndum. Pokinn er saumaður saman með því að varpa (sauma) brúnirnar saman með örfínum sporum. Að ofan er brotið inn af brúninni og hún saumuð niður í höndum. Snúin snúra er þrædd í pokann að ofan.  Stærð á poka 30 x 25 sm. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla. 

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Handavinnupoki
Ártal
1939
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-38-1
Stærð
0 x 25 x 35 cm Breidd: 25 Hæð: 35 cm
Staður
Staður: Miðbæjarskólinn, Fríkirkjuvegur 1, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Miðbærinn, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Handavinnupoki
Efnisorð:
Skólahandavinna

Upprunastaður

64°8'42.0"N 21°56'20.8"W