Handavinnupoki
1939

In preservation at
Reykjavík City Museum
Handavinnupoki sem Guðríður saumaði 9 ára gömul í Miðbæjarskóla. Pokinn er allur handsaumaður. Hann er úr hvítu þéttofnu bómullarefni sem gæti verið hveitipokaefni. Að framan er mynd af stelpu í víðu pilsi sem minnir á fatnað frá Mið Evrópu. Munstrið fékk Guðríður sent frá ömmu sinni í Ameríku, en Jónína segir að amman hafi oft sent þeim munstur á transfer pappír (pappír með munstri sem hægt er að strauja á efni). Útsaumurinn er sérlega fallega unninn, mjög fíngerður og sporin jöfn.
Á bakhlið pokans er fangamarkið GÞ saumað með útsaumi. Útlínur stafanna eru saumaðar með fíngerðum leggsaumi (kontorstingur, varpleggur), en inn í stafina er saumað ídregið krókspor í sömu spor og leggsaumurinn. Ídregið krókspor er einnig saumað til beggja hliða eftir endilöngum pokanum. Brotið er inn af faldinum á hliðum og hann saumaður niður í höndum. Pokinn er saumaður saman með því að varpa (sauma) brúnirnar saman með örfínum sporum. Að ofan er brotið inn af brúninni og hún saumuð niður í höndum. Snúin snúra er þrædd í pokann að ofan.
Stærð á poka 30 x 25 sm.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Main information
Guðríður Þórhallsdóttir, Attributed
Donor: Jónína María Sveinbjarnardóttir
Recorder: Sigrún Guðmundsdóttir
Recorder: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Donor: Jónína María Sveinbjarnardóttir
Recorder: Sigrún Guðmundsdóttir
Recorder: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Title
Proper noun: Handavinnupoki
Dating
1939
Material
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2017-38-1
Dimensions
0 x 25 x 35 cm
Breidd: 25 Hæð: 35 cm
Place
Staður: Miðbæjarskólinn, Fríkirkjuvegur 1, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Miðbærinn, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Keywords
Place of origin
64°8'42.0"N 21°56'20.8"W
