Dúkur

Varðveitt hjá
Heimilisiðnaðarsafnið
Dúkuri saumaður með harðangurs- og klaustursaumi. Bómullargarn í bómullarjafa. Átta reitir saumaðir, hringinn á milli eru hedebostólpar. Í miðju hvers munsturs eru hedebostólpar og bjöllur. Tungur í kring. Þar sem efnið hafði ekki verið nógu breytt, er bætt við það og viðbótin látin falla vel við munstrið. Þessi dúkur hafði verið notaður á borðstofuborð.
Saga: Jóhanna Erlendsdóttir (1905-1979) var fædd í Blöndudalshólum en ólst að mestu upp í Hnausum í Þingi. Síðar húsfreyja á Grýtubakka í Höfðahverfi og svo á Breiðavaði við Blönduós. Hún saumaði þennan dúk ásamt nr. 1994 og 1995, er hún var með Þorstein son sinn á brjósti, en hann var fimmta barn þeirra hjóna Sigfúsar og hennar.
Aðrar upplýsingar
Titill
Sérheiti: Dúkur
Safnnúmer
Safnnúmer A: HIS-1993
Stærð
76 x 73
Lengd: 76 Breidd: 73
Staður
Staður: Breiðavað, 541-Blönduósi, Húnabyggð, Langidalur, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Heimilisiðnaðarsafnið
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Dúkur, skráð e. hlutv.
Upprunastaður
65°39'50.4"N 20°13'0.5"W



