Sængurver A og B

Sængurver A og B úr hör, hvítt. Nokkuð slitið Hneppt að neðan með léreftstölum og bendlaborðum. Tvær stórar heklaðar dúllur sín hvoru megin við stafina IV. Blómamunstur saumað út með hvítu bómullargarni með flatsaum  Saga: Talið er að sængurverin hafi verið saumuð sem brúðarver. Ingibjörg Vilhjálmsdóttir sem saumaði þau fæddist 23. október 1903 í Svarfaðardal. Ólst hún upp á Bakka þar í sveit, þar sem hún lærði fatasaum og hannyrðir af móður sinni, sem þótti mikil hagleikskona. Ingibjörg flyst til Blönsuóss þegar hún kynntist manni sínum, Tómasi R. Jónssyni. Á Blönduósi þroskaði hún áfram handbragð sitt með því að sauma mestallan fatnað á fjölskyldu sína. Einnig saumaði hún á vini og kunningja, án þess að þiggja greiðslu fyrir. Vanmetið má síðan telja starf hennar í þágu Leikfélags Blönduóss, þar sem ófáar vinnustundir fóru í búningahönnun og saumaskap. Í áraraðir var hún prófdómari í hannyrðum við Kvennaskólann á Blönduósi, starf sem henni þótti vænt um. Þetta sængurverasett saumaði Ingibjörg sem ung kona og var það eingöngu notað á hátíðarstundum, eins og um jól og páska. Ingibjörg Vilhjálmsdóttir (1903-1969).

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Sængurver A og B
Safnnúmer
Safnnúmer A: HIS-2333-a og b
Stærð
184 x 135 Lengd: 184 Breidd: 135
Staður
Núverandi sveitarfélag: Húnabyggð, Húnabyggð
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Heimilisiðnaðarsafnið
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Sængurver