Bryggja
1910 - 1919

Varðveitt hjá
Minjasafnið á Akureyri
Athafnasvæði síldarsaltenda á Oddeyrartanga. Háa húsið með kvistinum er Norðurpóll, Gránufélagsgata 57 (eða "Nordpolen" eins og stóð á húsinu) byggt árið 1907, rifið 1979. Þekktastir eigendur þess fyrstu árin voru Magnús Þórðarson og Sigríður Ingimundardóttir. Í þessu fallega og reisulega húsi var gisting og greiðasala og voru útlendingar, sérstaklega Norðmenn, þar tíðir gestir á síldarárunum 1910-1920. - Húsið til hægri er Gránufélagsgata 53, byggt 1916-1918, kallað "Litla-Reykjavík". Fyrsti eigandi þess og sá sem lét byggja það var Elías Stefánsson útgerðarmaður. Hann réð hóp kvenna úr Reykjavík til þess að salta síld á Tanganum á sumrin og var þetta hús heimili þeirra þann tíma. Þess vegna fékk húsið þetta nafn og ber það enn í dag. - Uppsatur skipa er syðst á Tanganum.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1910 - 1919
Safnnúmer
Safnnúmer A: H2-427
Staður
Núverandi sveitarfélag: Akureyrarbær, Akureyrarbær
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Glerplötur - Hallgímur Einarsson
Flokkun
Efnisorð / Heiti
