Bjálkahús

01.01.1914 - 01.01.1916
Gránufélagsgötu 53 reisti Elías Stefánsson stórútgerðarmaður árið 1916, sem þá rak síldarsöltun á Oddeyrartanga. Hluti hússins var fluttur utan úr Dagverðarvík, þar sem rekin var síldarsöltun árið áður. Í húsinu var húsið var íbúðar- og geymsluhús á háum kjallara, með portbyggðu risi og kvistum. Það var reist fyrir verkafólk sem vann hjá útgerðarfélaginu Nirði. Þar sem starfsfólkið var nær eingöngu frá Reykjavík var húsið þá og lengi síðar kallað Litla-Reykjavík. Eftir að umsvifum útgerðafélagsins Njarðar lauk á Akureyri var húsinu breytt í íbúðir og síðar rifið 1991. Landamerki Akureyrarkaupstaðar og eigenda Oddeyrartanga lá á þessum árum með vesturstafni hússins. Árið 1918 er þess getið að eigandin noti húsið sem geymslu og "sumarbústað" þ.e. verbúð fyrir verkafólk. "Húsið var tvær álmur, önnur með framhlið að Gránufélagsgötu og við austurenda hennar var álma til norðurs. Hornið þar sem álmurnar mættust var sneitt og kvistur þar yfir. Húisð hélt allatíð sínu upphaflega lagi en var orðið nokkuð hrörlegt undir lokin og stóð mannlaust um tíma. Það var rifið árið 1991" Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson, Oddeyri.Húsakönnun. Minjasafnið á Akureyri 1995, s.91.  

Aðrar upplýsingar

Ártal
01.01.1914 - 01.01.1916
Safnnúmer
Safnnúmer A: H1-273
Stærð
12 x 165 cm
Staður
Staður: Gránufélagsgata 53, 600-Akureyri, Akureyrarbær
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Glerplötur - Hallgímur Einarsson
Efnisorð / Heiti
Myndefni: Bjálkahús
Myndefni:
Bygging, íbúðarhús
Myndefni:
Byggingameistari
Myndefni:
Bygginga- og mannvirkjagerð
Myndefni:
Byggingavinna
Myndefni:
Byggingaverkamaður
Myndefni:
Bíll
Myndefni:
Fánastöng, utanhúss
Myndefni:
Fáni
Myndefni:
Handkerra
Myndefni:
Smiður
Myndefni:
Stillans