Bátur

1954
Draupnir var smíðaður af Sigfúsi Þorsteinssyni í Syðra-Kálfsskinni árið 1954. Sigfús smíðaði bátinn úti á túni með handverkfærum að mestu, án teikninga, og þótti smíði hans þrekvirki við þessar aðstæður þar sem ekki var um húsaskjól að ræða hvernig sem viðraði. Engar teikningar voru gerðar en tekið var mál eftir gömlum bát og dregnar línur eftir því. Eitt ár tók að smíða bátinn. Draupnir var gerður út frá Hauganesi þar til hann var seldur til Þórshafnar 1981 og þaðan til Vestmannaeyja 1990 og hét þá Kristín VE 40. Síldarminjasafnið eignaðist Draupni árið 1995 eftir úreldingu hans. Báturinn er nú varðveittur í Bátahúsi safnsins.

Aðrar upplýsingar

Sigfús Þorsteinsson, Hlutinn gerði
Ártal
1954
Safnnúmer
Safnnúmer A: 950717
Stærð
11.38 x 3 m Lengd: 11.38 Breidd: 3 m
Staður
Staður: Hauganesland, Dalvíkurbyggð, Árskógsströnd, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Bátur

Upprunastaður

65°55'36.6"N 18°18'28.6"W