Vindlakassi
1956

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Vindlakassi úr silfri með rauðum harðviðarkassa að innanverðu með þremur hólfum. Að utanverðu eru hliðar kassans bylgjulaga og á lokið er grafið: M. E. JESSEN Heill þér sjötugum. Frá nemendum Vélskólans í Reykjavík 1955-1956. Kassinn er úr eigu Marinus Eskild Jessen, en hann var skólastjóri Vélskólans. Með brún á botni kassans eru fjórir silfurstimplar. Annars vegar er stimpillinn *11 og hins vegar þrír stimplar: smiðsstimpillin PV, þá ógreinilegur stimpill og loks gæðastimpillinn 835. Gefandi keypti vindlakassann á markaði í Kolaportinu.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1956
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2013-17
Stærð
19.4 x 14 x 4.3 cm
Lengd: 19.4 Breidd: 14 Hæð: 4.3 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Vindlakassi



