Kona

1859
Kona Jóns Guðmundssonar ritstjóra. Kopía eftir ljósmynd í eigu Skjalasafns Reykjavíkurborgar, gerðri eftir teikningu Sigurðar málara Guðmundssonar, áritaðri Sigurður Guðmundson 1859. Mannamyndir Sigurðar Guðmundssonar málara, bls. 28: ... Til var blýantsteikning af Hólmfríði með áritun Sigurðar: Sigurðr Guðm:1859, í hægra horni að neðan, á ská. Síðast átti þá mynd Þuríður Sigurðardóttir fangavarðar, sonardóttir Hólmfríðar. Myndin eyðilagðist í eldsvoða þegar barnaheimilið Vorblómið í Kaplaskjóli við Reykjavík brann 17. okt.1934. Fór þá sömu leið mynd Sigurðar af Jóni ritstjóra Guðmundssyni (sjá þar), manni Hólmfríðar. Af teikningunni eru til í Þjóðminjasafni nokkrar ljósmyndir: Mms. 962, 977, 18928, 18959, 24913, auk einnar sem er ótölusett. Má glöggt greina áritun Sigurðar á ljósmyndunum, svo og höfundareinkenni hans. (Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 27.4.2011)

Aðrar upplýsingar

Ártal
1859
Safnnúmer
Safnnúmer A: Mms-24913
Stærð
27 x 20 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Mannamyndasafn (Mms)
Efnisorð / Heiti
Myndefni: Kona
Myndefni:
Ljósmynd
Myndefni:
Teikning, listræn
Heimildir
Aðfangabók Þjóðminjasafns Íslands. Nr. 21806 - 25504. Halldór J. Jónsson. Mannamyndir Sigurðar Guðmundssonar málara. Sérprent úr Árbók Hins íslenzka Fornleifafélags. 1977.