Lyftikrókur

Varðveitt hjá
Síldarminjasafn Íslands
Beykisáhöld og önnur verkfæri sem Jón Kristjánsson frá Steinaflötum á Siglufirði átti voru gefin Síldarminjasafninu. Jón bjó að Suðurgötu 24 á Siglufirði. Hann starfaði hjá Ole Tynes og Dr. Paul. Gefandi er sonur hans, Kristinn Jónsson. 2 stk. lyftikrókar, einnig nefndir lyftihakar.
Lyftikrókar voru notaðir til að lyfta fullum síldartunnum upp í annað og þriðja lag í tunnustæðum. Stóðu þá tveir menn hvor við sinn enda tunnunnar með krókana í höndum og settu þá undir laggirnar. Með báðar hendur á verkfærunum lyftu þeir svo tunnunni. (sbr. Benedikt Sigurðsson – Orð úr máli síldarfólks) Krókarnir voru fyrst kallaðir Sigurjónskrókar eftir Sigurjóni Benediktssyni járnsmiði. Hann fann upp á þessu áhaldi og smíðaði að sögn sonarsonar hans Sigurjóns Jóhannssonar myndlistarmanns: ,,Mín heimild er faðir minn sem sýndi mér lyftikrókapar og tjáði mér að þeir væru uppfinning afa mìns, Sigurjòns Benediktssonar, járnsmiðs á Siglufirði. Hvenær hann smíðaði þá fyrst, veit ég ekki, en fram að þeim tíma notuðu menn fingurgómana sem þeir brugðu undir laggirnar við botnana ofanverða og lyftu þannig tunnunni á milli sín“ (Sigurjón Jóhannsson, tölvupóstur þann 11. febrúar 2009) Í Handbók síldarverkunarmanna e. Magnús Vagnsson stendur svo á bls. 19: ,,Krókar til að lyfta tunnum upp í annað lag eru margskonar, flestir lítið sparandi og sumir hættulegir. En til eru ágætir lyftikrókar, sem létta vinnuna og eru hættulausir. Þessi áhöld hafa verið kölluð Sigurjónskrókar, kenndir við Sigurjón járnsmið á Siglufirði, en hann smíðaði þá fyrstur hér á landi.“ (Magnús Vagnsson, 1939: 19.)
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Kristinn Jónsson
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 980804-4
Stærð
22.5 x 2.5 x 22 cm
Lengd: 22.5 Breidd: 2.5 Hæð: 22 cm
Staður
Staður: Suðurgata 24, 580-Siglufirði, Fjallabyggð, Siglufjörður, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Lyftikrókur
Heimildir
Magnús Vagnsson, 1939, Handbók síldarverkunarmanna. Sigurjón Jóhannsson, tölvupóstur þann 11. febrúar 2009. Benedikt Sigurðsson. Óútgefið handrit: Orð úr máli síldarfólks.
Upprunastaður
66°8'56.8"N 18°54'47.0"W
