Ingibjörg Guðrún Kristjánsdóttir
9.9.1848 - 12.1.1931
Staða
Húsfreyja
Staður
Staður: Efra-Sel, 801-Selfossi, Hrunamannahreppur, Ytrihreppur, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Hrunamannahreppur, Hrunamannahreppur
Sveitarfélag 1950: Hrunamannahreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Foreldrar: Kristján Hallgrímsson (f. 1817, d. 1860) og Margrét Magnúsdóttir (f. 1811, d. 1893).
Systkini: Þórður (f. 1838, d. 1883), Ólöf (f. 1841, d. 1912), Bernharður (f. 1844) og Bessabe Elínborg (f. 1852, d. 1860) Kristjánsbörn.
Ingibjörg bjó ásamt foreldrum sínum á Kirkjubólshúsi í Holtssókn í Ísafjarðarsýslu skv. manntalinu 1850 og 1855. Árið 1860 eru foreldrar Ingibjargar skráð sem vinnuhjú á Lambadal ytri í Mýrasókn í Ísafjarðarsýslu. Ekki er víst hvar Ingibjörg var það árið en 1870 var hún skráð sem vinnukona í Haukadal í Hrauns- og Sandasókn í Ísafjarðarsýslu, þá 23 ára að aldri. 1880 var hún vinnukona í Meðaldal í Sandasókn og virðist sem móðir hennar, sem þá var orðin ekkja, hafi verið þar einnig. Árið 1890 hafði Ingibjörg gifst Guðleifi Björnssyni (f. 1849, d. 1913) bónda og bjuggu þau á Bakka í Sandasókn. Guðleifur var sonur vinnuhjúanna Björns Jónssonar og Vigdísar Jónsdóttur (f. 1822, d. 1851). Hann var vinnumaður í Svalvogum í Hrauns- og Sandasókn 1870 og í Meðaldal 1880.
Ingibjörg og Guðleifur höfðu þá eignast þrjú börn, Friðrikku Kristínu (f. 1882, d. 1931), Kristján Björn (f. 1886, d. 1932) og Margréti Guðrúnu (f. 1887, d. 1961) Guðleifsbörn. Móðir Ingibjargar bjó þar með þeim. Árið 1901 búa þau í Hvammi í Sandasókn með eldri börnum sínum tveimur. Árið 1910 búa þau hjónin hjá syni sínum Kristjáni á Ketilseyri í Sandasókn. Svo virðist sem tilvonandi eiginkona Kristjáns, Ólína Guðrún Ólafsdóttir (f. 1885, d. 1971), hafi búið á næsta bæ á Ketilseyri. Ingibjörg bjó þá hjá syni sínum og konu hans Ólínu á Kirkjubóli í Korpudal í Mosvallahrepp í Vestur-Ísafjarðarsýslu 1920, þá orðin ekkja. Kristján og Ólína bjuggu að Kirkjubóli II í Korpudal á árunum 1912-1924.
Árið 1926 flutti Kristján með fjölskyldu sína og Ingibjörgu móður sína að Brekku á Álftanesi en 1928 að Efraseli í Hrunamannahreppi í Árnessýslu. Þar lést Ingibjörg, 82 ára að aldri og var hún grafin í Hrunakirkjugarði.
Heimildir:
Bergur Torfason o.fl. [ritstj.]. (1999). Firðir og fólk 1900-1999: Vestur-Ísafjarðarsýsla (Vestfjarðarit II): Búnaðarsamband Vestfjarða, bls. 374.
Minning: Ingibjörg Guðrún Kristjánsdóttir. (1980, 16. apríl). Morgunblaðið, bls. 22-23. Sótt af: https://timarit.is/page/1525672
Tengd aðföng
