Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands
Á hátíðardagskrá í tilefni af 110 ára afmæli Háskóla Íslands hinn 17. júní 2021, sem fram fór í Hátíðasal skólans, tilkynnti Vigdís Finnbogadóttir um þá ákvörðun sína að færa Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum/Háskóla Íslands ýmsa muni úr fórum sínum að gjöf. Við sama tækifæri undirrituðu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson f.h. mennta- og menningarmálaráðherra og Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands viljayfirlýsingu, þar sem kveðið er á um sýningarhald um líf og störf Vigdísar ásamt fræðastarfi í gömlu Loftskeytastöðinni og framlag ríkisins til verkefnisins.
Háskóli Íslands hefur móttekið muni úr forsetatíð Vigdísar, s.s. bréf og skjöl, gjafir erlendra þjóðhöfðingja, listmuni og fatnað, auk annarra gripa úr einkaeigu sinni og er unnið að skráningu þeirra í Sarp.
