Náttúruminjasafn Íslands

Náttúruminjasafn Íslands er eign íslenska ríkisins, höfuðsafn á sviði náttúrufræða og heyrir til menningar- og viðskiptaráðuneytisins. Menningar- og viðskiptaráðherra fer með yfirstjórn stofnunarinnar. Náttúruminjasafnið var stofnsett með lögum árið 2007 en rætur stofnunarinnar má rekja aftur a.m.k. til ársins 1889 þegar Hið íslenska náttúrufræðifélag var stofnað. Eitt meginmarkmið félagsins frá upphafi hefur verið að koma upp náttúrufræðisafni í höfuðborginni sem gagnist landi og þjóð. Hlutverk Náttúruminjasafns Íslands eru skilgreind í lögum um Náttúruminjasafn Íslands nr. 35/2007 og Safnalögum nr. 141/2011. Náttúruminjasafnið er fræðslu- og vísindastofnun sem er ætlað að gegna miðlægu hlutverki við miðlun þekkingar og upplýsinga um náttúrufræðileg efni og vera ráðgefandi gagnvart öðrum söfnum landsins sem sýsla með náttúruna. Stofnunin byggir starfsemi sína á rannsóknum og gagnaöflun á eigin vegum og í samstarfi við aðra, miðlun þekkingar og upplýsinga með staf- og rafrænni útgáfu, ráðgjöf, fyrirlestrum og sýningahaldi. Markmið safnfræðslu Náttúruminjasafns Íslands er að styðja við náttúrufræðikennslu á öllum skólastigum á skapandi og hvetjandi hátt og kynna fyrir nemendum spennandi heim náttúruvísindanna. Jafnframt er lögð áhersla á að vekja nemendur til umhugsunar um umhverfi sitt og órjúfanleg tengsl mannsins og náttúrunnar. Tekið er á móti skólahópum á sýningu safnsins, Vatnið í náttúru Íslands á 2. hæð Perlunnar alla virka daga. Sýningin er nútímaleg og fjölbreytt og býður upp á margvísleg viðfangsefni í náttúrufræðum. Fræðsla er ókeypis fyrir skólahópa. Náttúruminjasafnið hefur aðsetur á Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík. Þar eru skrifstofur stofnunarinnar.