Íslenska stríðsárasafnið
Íslenska stríðsárasafnið á Reyðarfirði var reist árið 1995 í þeim tilgangi að gera fólki kleift að ferðast aftur til daga hersetunnar og ýmist rifja upp gömul kynni eða stofna til nýrra. Megináhersla er lögð á lífið á stríðsárunum og áhrif hersetunnar á íslensku þjóðina og sýningar safnsins snúast um að koma þeim til skila á lifandi og skemmtilegan hátt. Gestum gefst kostur á að fara inn í bragga og bíósal, auk þess að skoða muni og fjölda mynda frá stríðsárunum. Safnið er eitt fjögurra safna Fjarðabyggðar og heyrir undir Menningarstofu Fjarðabyggðar.
