Kona

1910 - 1918
Jakobína Magnúsdóttir, Bergstaðastræti 45. „Líklega Jakobína Magnúsdóttir (1899-1957). Fjölskylda hennar bjó í húsinu a.m.k. 1913. Um Jakobínu Magnúsdóttur. Jakobína stundaði nám við VÍ 1915, og síðan framhaldsnám í verzlunarfræðum í Danmörku. Hún lauk hjúkrunarnámi við University College Hospital í London 1933, og lagði stund á framhaldsnám í skurðstofuhjúkrun og á kvensjúkdómadeild. Jakobína var hjúkrunarkona á Hvítabandinu 1924-37, hjá Hjúkrunarfélaginu Líkn, bæjarhjúkrun 1937-38, og yfirhjúkrunarkona á Kópavogshælinu 1938-40. Hún var forstöðukona á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 1940-57. Þegar Jakobína var við verslunarnám í Danmörku stundaði hún jafnframt nám í Foringjaskóla kvenskáta. Eftir heimkomuna gerðist hún einn af stofnendum og fyrsti foringi íslenskra kvenskáta og síðar heiðursfélagi þess félags. Hún var einnig ritstjóri Tímarits HFÍ í nokkur ár. Hjúkrunarkvennatal.“ (ES 2025)

Aðrar upplýsingar

Ártal
Aldur: 1910 - 1918
Safnnúmer
Safnnúmer A: CÓ1-7923
Staður
Staður: Bergstaðastræti 45, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Þingholt, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Carl Ólafsson 1 (CÓ1)
Efnisorð / Heiti
Myndefni: Kona
Heimildir
Hjúkrunarkvennatal.

Upprunastaður

64°8'32.5"N 21°56'7.0"W