Fiskibátur
01.01.1924

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Myndin er tekin yfir
höfnina, kajinn sker myndflötinn skáhallt og lokar Ystiklettur útsýninu.
Í forgrunni er kona með barnavagn og er karlmaður að gera við eitt hjólið
undan vagninum. Rétt hjá er árabátur uppá landi og fjær er skúr og milli
hans og kajans er töluverður hópur af fólki. Úti á legunni er allnokkur
fjöldi fiskibáta af ýmsum stærðum; yst t.v. sést lítil bryggja og við hana
tveir bátar, og í bakgrunni t.v. liggja nokkrir bátar uppí fjöru. Í baksýn
gnæfir Ystiklettur.
Aðrar upplýsingar
Ljósmyndari: P. J. Sørå
Ártal
01.01.1924
Safnnúmer
Safnnúmer A: Lpr
Safnnúmer B: 1994-209
Stærð
8.8 x 13.9
Staður
Staður: Vestmannaeyjahöfn, 900-Vestmannaeyjum, Vestmannaeyjabær
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Ljós- og prentmyndasafn (Lpr)
Flokkun
Efnisorð / Heiti