Höfn

1946 - 01.01.1947
Tveir spariklæddir ungir menn standa þétt saman. Sá til vinstri krækir armi undir handlegg hins. Á jakkafötum, með bindi og merki sjómannadagsins. Maður til hægri er á ljósum frakka, jakkafötum og með bindi. Báðir berhöfðaðir. Bakgrunnur óskýr, virðist þó vera höfn. Til vinstri er Ásgeir Þórarinsson, nú til heimilis að Njálsgötu 100, Reykjavík. Togarasjómaður (háseti) er myndin var tekin. Síðar sendibílastjóri í Rvk. Til hægri er Guðjón Sigurðsson, nú til heimilis að Meðalholti 21, Reykjavík. Heimildarmaður. Hann kveðst hafa verið sjómaður á bát og er myndin var tekin. Síðar gerði hann út eigin bát frá Reykjavík (Happasæl RE 190). Vinnur nú hjá mjólkursamsölunni í Rvk. Guðjón telur sig vera um 25 ára á myndinni, sem tekin er við Reykjavíkurhöfn, á tímabilinu 1946-1947.  

Aðrar upplýsingar

Ártal
1946 - 01.01.1947
Safnnúmer
Safnnúmer A: GÁ-465
Stærð
15 x 10
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Guðbjartur V Ásgeirsson (GÁ)
Efnisorð / Heiti
Myndefni: Höfn
Myndefni:
Jakkaföt
Myndefni:
Karlmaður
Heimildir
Ágúst Ó. Georgsson vann þessa skrá árin 1987 - 1990. Heimildamaður: Guðjón Sigurðsson (03051146)