Brúður
01.01.1791

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Kona í brúðarskarti með háan fald á höfði. Úr röð af myndum, gerðum í sambandi við ferð J. T. Stanley baróns um Ísland 1789. Keypt á uppboði hjá Christie´s í London 15. júni 1982 (uppboðsnr. 19,2), s. aðfangabók 9.7. 1982. Nefnd í uppboðsskrá: An Iceland Woman in her Bridal Dress.
Áritanir: Myndflötur afmarkaður tvöföldum strikum. Innan hans er skrifað neðst t.v.: Copied by Thomas Girton from a Drawing in the Possession of Sir Joseph Banks done by Inv.(?) Cleveley...1772. og neðan strika t.v. No-8 og fyrir miðju: An Iceland Woman in her Bridal Dress.
Myndin er kópía eftir frummynd frá leiðangri Sir Joseph Banks 1772.
Gersemar þjóðarinnar:
um 1790, vatnslitamynd
Amtmannsfrúin á brúðarbúningnum
Vatnslitamyndin er kópía af annarri mynd og er talin sýna Sigríði Magnúsdóttur (1734-1807), amtmannsfrú, á brúðarbúningi. Frummyndin var gerð í vísindaleiðangri til Íslands árið 1772 sem enski náttúrufræðingurinn og landkönnuðurinn Sir Joseph Banks (1743–1820) stýrði. Til þeirrar ferðar réði hann meðal annarra listamanninn John Cleveley yngri (1747-1786) til að skrásetja það sem fyrir augu bar. Banks skrifaði um klæðnað Íslendinga í dagbækur sem hann hélt um ferðir sínar. Hann skrifaði meðal annars um íslenska faldbúninginn og lýsti þar hinum einkennandi höfuðbúnaði; faldinum, strýtu úr hvítum dúk, sem beygðist lítið eitt fram. Einnig vakti skrautið úr silfur-og gullvíravirki áhuga hans. Frummynd myndarinnar sem hér er til umfjöllunar er mynd Cleveley af þessum kvenklæðum. Myndin er í senn söguleg heimild og listræn túlkun hans á faldbúningnum, dregin upp með fínlegum línum og næmri litanotkun. Í framhaldi af leiðangri Banks var farinn annar Íslandsleiðangur árið 1789 og var það Sir John Thomas Stanley, barón, sem leiddi þá för. Í kjölfar þeirrar ferðar gerði ungi lærlingurinn Thomas Girtin (1775-1802) þessa kópíu eftir frummynd Cleveley af Sigríði á brúðarbúningnum. Líkindin við frummyndina eru mikil og sömu smáatriði sýnileg. Girtin gerði fleiri kópíur eftir fummyndum úr leiðangri Banks og eru þær taldar meðal elstu þekktu verka hans. Frummynd Cleveley hefur verið endurgerð oftar og er helsta myndheimildin um íslenska brúðarbúninga á síðari hluta 18. aldar.
Vatnslitamynd Girtin var keypt á uppboði hjá Christie‘s í London 15. júní 1982 og síðar gefin til Þjóðminjasafns Íslands.
Umfjöllunin birtist í Menningarblaði Morgunblaðsins, 7. maí 2026. Fjallað er um gripi í varðveislu Þjóðminjasafnsins í hverju fimmtudagsblaði undir formerkjunum „Gersemar þjóðarinnar”.
Aðrar upplýsingar
Ljósmyndari: Thomas Girtin
Ártal
01.01.1791
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: Stnl-32
Stærð
48.5 x 35
49.5 x 36.5 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Stanley (Stnl)
Flokkun
Efnisorð / Heiti
