Barn

01.01.1886 - 1890
Gatnamót. Nokkur timburhús og eitt hús með bindingsverki. Afgirtir stígar, grjótgarðar, kartöflugarðar, nokkur börn í fjarska, hænu, olíuluktarstaur, vagnhjól ofl. Yngsta húsið Þingholtsstræti 12 reist árið 1883. Húsið fyrir miðju fær efri hæðina 1886. Ljósmyndir Sigfúsar Eymundssonar, bls. 60-61/mynd 38: Úr Þingholtunum um aldamótin, gatnamót Amtmannsstígs og Þingholtsstrætis. Hér sjást nokkur þeirra timburhúsa, sem reist voru í Þingholtunum fyrir aldamótin og hafa lengi einkennt þennan bæjarhluta, sum hver með nýklassisku yfirbragði, sem þá var talsvert farið að gæta hérlendis. Til vinstri ber hæst Amtmannshúsið, hún Bergs Thorbergs amtmanns (sjá 66.mynd), sem stígurinn var kenndur við. Neðan við er lítið, dökkt timburhús, það sem Helgi Jónsson snikkari reisti úr afgangsviðum frá Latínuskólanum, Guðrún Daníelsdóttir átti lengi og nú stendur í Árbæjarsafni. Húsið fyrir miðju stendur enn á sínum stað, en það reisti Helgi trésmiður og tónskáld sonur Helga snikkara. Miðhluti hússins var reistur 1871 en síðar var það lengt til beggja enda og fékk þá það útlit, sem það hefur á myndinni. - Gegnt þessu húsi Helga Helgasonar stendur annað hús sem hann átti, það sem hann bjó sjálfur í. Það stendur einnig enn í dag, en lengst til hægri sést hús Benedikts Gröndals, sem Bjarni Sæmundsson fiskifræðingur átti síðar. Gröndal lét reisa húsið 1881 og mun Helgi Helgason hafa séð um smíði þess.   Amtmannsstígurinn er hér aðeins mjór gangstígur með trégrindverki til beggja handa og grjótgarðar afmarka húsalóðir og kartöflugarða. (Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 17.3.2011)

Aðrar upplýsingar

Ljósmyndari: Sigfús Eymundsson
Ártal
01.01.1886 - 1890
Safnnúmer
Safnnúmer A: Lpr-466
Stærð
16.5 x 21.5
Staður
Staður: Amtmannsstígur, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Þingholt, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Ljós- og prentmyndasafn (Lpr)
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Þór Magnússon. Ljósmyndir Sigfúsar Eymundssonar. Reykjavík, 1976.