Höfn

01.01.1875
Uppskipun á saltfiski. Keypt í Bókaskemmunni, Langholtsvegi 33: 14 myndblöð úr Illustrated London News með myndum af norðurslóðum, aðallega Íslandi. Stærð heilla blaða 41 x 28 cm. Nr. 3968: 4. sept. 1875: Uppskipun á saltfiski í Reykjavík. Eftir ítarskrá Halldórs J. Jónssonar: Tréstungur (xylografi) á úrklippu, 21 x 28 cm. úr Illustrated London News 4. sept. 1875, bls. 219 - 220. Frumm.: Melton Prior. Stunga: Louis Huard Saltfiskuppskipun í Reykjavík. „Sketches in Iceland: Landing dried cod at Reykjavík“. Keypt í Bókaskemmunni, Langholtsvegi 33. Skráð 20. 4. 1977. J. Gamlar þjóðlífsmyndir, mynd 99: Hér sjást þó bæði konur og karlar í uppskipun á fiski við bryggju í Reykjavík. Myndin er frá 1875. Þessi bryggja hefur verið í eigu einhverrar verslunar, því að engar slíkar framkvæmdir voru á vegum bæjarstjórnar fyrr en árið 1884, að svokölluð Steinbryggja var gerð við enda Pósthússtrætis. Helsta bryggjan fram til þessa var við enda Aðalstrætis og lá gangur milli þess og hennar gegnum Bryggjuhúsið, þar sem nú er teppaverslun Álafoss á Vesturgötu 2. Sú bryggja var fyrst í eigu Fischersverslunar, sem Fischersund er kennt við, en síðar í eigu fyrirtækisins H.P. Duus. (Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 2.3.2011)

Aðrar upplýsingar

Ljósmyndari: Melton Prior
Ártal
01.01.1875
Safnnúmer
Safnnúmer A: Lpr-3968
Stærð
21 x 28
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Ljós- og prentmyndasafn (Lpr)
Efnisorð / Heiti
Myndefni: Höfn
Myndefni:
Saltfiskur
Myndefni:
Uppskipun
Heimildir
Árni Björnsson, Halldór J. Jónsson. Gamlar þjóðlífsmyndir. Reykjavík, 1984.