Hestur

01.01.1924 - 01.01.1933
Skjóttur hestur í forgrunni myndarinnar. Maður stendur vinstra megin við hann og snýr baki í myndasmiðinn. Maður með bakpoka stendur til hægri á myndinni og snýr baki í myndasmiðinn, væntanlega Arnór Sigurjónsson. Annað fólk virðist sitja hinum megin við hrossið, glittir aðeins í það. Í bakgrunni má sjá símastaur. Aftan á myndinni stendur „Ferðalag á Laugaárum Arnór og fleiri“.

Aðrar upplýsingar

Ártal
01.01.1924 - 01.01.1933
Safnnúmer
Safnnúmer A: Lpr Safnnúmer B: 2010-100-3
Stærð
7.8 x 10.4
Staður
Núverandi sveitarfélag: Þingeyjarsveit, Þingeyjarsveit
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Ljós- og prentmyndasafn (Lpr)
Efnisorð / Heiti
Myndefni: Hestur
Myndefni:
Karlmaður
Myndefni:
Maður
Myndefni:
Símalína
Myndefni:
Símastaur
Myndefni:
Áningarstaður
Heimildir
Aðfangabók þjms. 2010. Kennaratal á Íslandi, bls. 19.