Fólk
1917

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Þrjár sjálfstæðar
myndir í einum aflöngum ramma.
I.: Í forgrunni er
gróinn bali við litla vík sem markast af klettarana sem gengur fram frá
hægri. Fremst stendur lamb, greinilega heimalingur, litlu fjær við fjörubakkann
eru nokkrar hænur að kroppa. Klettaraninn auðkennist af gjá sem nær þvert
í gegn um hann framarlega. Handan hans er flói og fjöll í fjarska.
II.: Myndin sýnir
tveggja bursta sveitabæ, gaflarnir eru hvítmálaðir og hliðarveggirnir hlaðnir
úr grjóti. Yst t.v. við annað húshornið hefur heimilisfólkið stillt sér
upp til myndatöku. T.h. í baksýn er strýtulaga hlaði og á hól skammt frá
ferköntuð varða eða ek. viti með trévirki ofaná.
III.: Myndin sýnir
litla vík sem nýtur skjóls af klettanefi sem gengur að flæðarmæli og hlöðnum
grjótvegg í framhaldinu. Í forgrunni er árabátur í flæðarmálinu og er karlmaður
um borð. Í baksýn eru þrír litlir seglbátar með seglin uppi og eru þeir
í röð fast upp við klettinn og grjótvegginn. Einn maður er um borð í hvorum
aftari bátanna en karl og kona standa í fjörunni við stefni fremsta bátsins.
Yst t.v. í bakgrunni uppá klettinum er ferkantaða varðan, sú sama og á
fyrri myndinni.
Aðrar upplýsingar
Ljósmyndari: Sæmundur Guðmundsson
Fía Schöth, Á mynd
Ingibjörg Jónsdóttir, Á mynd
Guðjón Eyjólfsson, Á mynd
Jens Elías Nikulásson, Á mynd
Eyjólfur Ólafsson, Á mynd
Klásína Guðfinnsdóttir, Á mynd
Nikulás Jensson, Á mynd
Kristín Guðmundsdóttir, Á mynd
Fía Schöth, Á mynd
Ingibjörg Jónsdóttir, Á mynd
Guðjón Eyjólfsson, Á mynd
Jens Elías Nikulásson, Á mynd
Eyjólfur Ólafsson, Á mynd
Klásína Guðfinnsdóttir, Á mynd
Nikulás Jensson, Á mynd
Kristín Guðmundsdóttir, Á mynd
Ártal
1917
Safnnúmer
Safnnúmer A: Lpr
Safnnúmer B: 1995-332
Stærð
12 x 17
18.7 x 58.9 cm
Staður
Staður: Sviðnur, Reykhólahreppur
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Ljós- og prentmyndasafn (Lpr)
Flokkun
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Aftaná myndina er
límt blað með nákvæmri lýsingu og nafngift á fólki, landslagi og bátum
sem og tilurð myndanna.
Upprunastaður
65°23'55.7"N 22°38'25.2"W