Höfundarréttur: Myndstef, Listasafn Íslands Mynd: Listasafn Íslands

Stóð eg úti í tunglsljósi

= 1960 - 1970, Finnur Jónsson
Varðveitt hjá
Listasafn Íslands

Aðrar upplýsingar

Titill
Verkheiti: Stóð eg úti í tunglsljósi
Ártal
= 1960 - 1970
Safnnúmer
Safnnúmer A: LÍ-4452
Stærð
160.5 x 210.5 x 0 cm Stærð með ramma: 163 x 214 x 0 cm
Sýningartexti
Hér er myndefnið sótt í kvæðið Álfareiðineftir Heinrich Heine í þýðingu Jónasar Hallgrímssonar frá árinu 1843. Kvæðið hafa Íslendingar sungið fullum hálsi við áramót, þar sem sögur segja að álfar fari á stjá og flytji búferlum. Það gerist margt sem við sjáum ekki en skynjum ef til vill. Sitji maður á krossgötum þyrpast álfar að og þá er betra að vanda sig og láta ekki ginnast og segja er dagur rennur: „Guð sé lof, nú er dagur um allt loft.“ Við sjáum álfa þeysa yfir grundir á hvítum hestum og álfadrottninguna ljósklædda teygja fram höndina í átt að manni sem stendur í skjóli milli trjánna og fylgist með. Bjartir litir fanga augað þar sem lúðrablástur hljómar undir hálfmána sem hangir yfir trjátoppunum. Allt er þetta í anda ævintýrisins sem menn upplifa við flutning lagsins. Sterk útlínuteikning í anda þýska expressjónismans einkennir málverkið sem minnir á sviðsmynd úr leikhúsi þar sem tunglsljósið lýsir upp sviðið.   The inspiration of the painting is the poem Álfareiðin(The Ride of the Elves), a translation (1843) by Romantic poet Jónas Hallgrímsson of Heinrich Heine’s Reisebilder (1826–1827). This song is heartily sung by Icelanders at the New Year, when, according to folklore, elves are on the move, going to their new homes. Much happens on New Year’s Night that we do not see, but may perhaps perceive. If a human sits at a crossroads they may see elves gathering – and then it is best to take care not to be deceived by them. When the new day dawns it is customary to say: “God be praised, now the daylight is everywhere.” Here we see elves riding across the green countryside on white horses, and the elven queen in her light-coloured robes stretches out a hand to a human who stands among the trees, watching. Bright colours catch the eye as horns are played beneath a crescent moon that hangs over the treetops. This is all in harmony with the fairytale ambiance of the song. Strongly drawn outlines in the style of German Expressionism characterise the painting, which is reminiscent of a stage set, where the moon illuminates the stage.
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Aðalskrá Undirskrá: Gjöf Finns Jónssonar og Guðnýjar Elísdóttur
Áletrun / Áritun
Áritun: f.jónsson Merkimiði: F.J. 68.
Gefandi
Gjöf listamannsins og Guðnýjar Elísdóttur konu hans 1985.
Efnisorð / Heiti
Efnisinntak: Álfur
Efnisinntak:
Hestur
Efnisinntak:
Tungl
Efnisinntak:
Skógur
Höfundarréttur
Höfundarréttur: Myndstef Höfundarréttur: Listasafn Íslands