Höfundarréttur: Myndstef, Listasafn Íslands
Höfundarréttur: Myndstef, Listasafn Íslands
Höfundarréttur: Myndstef, Listasafn Íslands
Höfundarréttur: Myndstef, Listasafn Íslands

Sjódraugur

= 1951 - 1952, Finnur Jónsson
Varðveitt hjá
Listasafn Íslands
Í verkinu Sjódraugur er landslagið eins konar bakgrunnur eða sögusvið og myndefnið tekið úr þjóðsögu. Sjódraugar eru draugar sem hafast við í og við sjóinn. Til eru nokkrar sögur af sjódraugum sem gefa frá sér óhugnanleg hljóð, æpa og góla. Talið var að af þeim stafaði mikil ógn. Myndin er full af andstæðum þar sem ljós og litir eru ýktir og skuggaleg afturgangan á miðri myndinni er böðuð skæru ljósi sem skapar ískyggilega tilfinningu. Myndin er ævintýraleg og jafnvel ljóðræn, máluð í expressjónískum stíl þar sem þéttir pensildrættir skapa áhrifamikla stemningu og litirnir draumkennda dulúð. Myndefnið er ef til vill áminning um dauðann (og hverfulleika lífsins) sem var vinsælt myndefni í evrópskri myndlist fjórða áratugarins.

Aðrar upplýsingar

Titill
Verkheiti: Sjódraugur
Ártal
= 1951 - 1952
Safnnúmer
Safnnúmer A: LÍ-4441
Stærð
80 x 100.5 x 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Aðalskrá Undirskrá: Gjöf Finns Jónssonar og Guðnýjar Elísdóttur
Áletrun / Áritun
Áritun: finnur Jónsson Merkimiði: F.J. 92.
Gefandi
Gjöf listamannsins og Guðnýjar Elísdóttur konu hans 1985.
Efnisorð / Heiti
Efnisinntak: Tungl
Efnisinntak:
Sjór
Efnisinntak:
Draugur
Höfundarréttur
Höfundarréttur: Myndstef Höfundarréttur: Listasafn Íslands