Höfundarréttur: Listasafn Íslands, Myndstef Mynd: Listasafn Íslands

Fiskibátur

Varðveitt hjá
Listasafn Íslands

Aðrar upplýsingar

Titill
Verkheiti: Fiskibátur Annað verkheiti: Nótt á sjónum Enskt verkheiti: Fishing Boat
Ártal
= 1958
Safnnúmer
Safnnúmer A: LÍ-1076
Stærð
160 x 209 x 0 cm Stærð með ramma: 171,5 x 220 x 0 cm
Sýningartexti
Í málverkum sínum leitaðist Gunnlaugur Scheving iðulega við að túlka hið nána samband manns og náttúru í lífi og störfum alþýðunnar til sjávar og sveita. Stærð og efnistök þessara verka skapa honum sérstöðu í íslenskri myndlistarsögu. Sjávarlífsmyndir Gunnlaugs báru einnig með sér nýja strauma sem tengja má við breytta atvinnuhætti og vélvæðingu. Í málverkinu Fiskibátur dregur Gunnlaugur Scheving upp mynd af baráttu íslenskra sjómanna við náttúruöflin. Við sjáum aðeins hluta skipsins og fáum tilfinningu fyrir hreyfingu þess og veltingi. Sjómennirnir í forgrunni eru þungamiðja verksins, málaðir með dökkum litum, alvarlegir og traustvekjandi. Blár himinn í bakgrunni gefur til kynna veður og birtu. Að baki þessu stóra málverki frá 1958 liggja ótal frumdrög þar sem sjá má hvernig listamaðurinn rannsakar og leitar hinnar fullkomnu myndbyggingar. Með einfaldri formbyggingu og hreinum flötum öðlast myndir Gunnlaugs táknræna merkingu sem vísar frá hinu einstaka til hins almenna og algilda.   In his paintings Gunnlaugur Scheving invariably sought to portray the close relationship between humans and nature in the life and work of the Icelandic people, on land and at sea. The size and approach of his works is unique in Icelandic art. Gunnlaugur’s maritime paintings also introduced new trends that related to mechanisation and changing working methods. In Fishing Boat the artist depicts Icelandic mariners in their battle with the powers of nature. We see only a part of their vessel, and receive an impression of its movement and rocking on the waves. The fishers in the foreground are the focus of the piece, painted in dark colours, solemn and dependable. The blue sky in the background indicates the weather and light conditions. This large-format painting from 1958 was preceded by innumerable drafts, which illustrate how the artist experimented in search for the perfect composition. With simple composition and clean planes, Gunnlaugur Scheving’s paintings take on a symbolic significance, reaching out from the specific to the general and universal. 
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Aðalskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisinntak: Fugl
Efnisinntak:
Sjómennska
Efnisinntak:
Bátur
Efnisinntak:
Fiskur
Efnisinntak:
Sjómaður
Útgáfa / Sería
1
Höfundarréttur
Höfundarréttur: Listasafn Íslands Höfundarréttur: Myndstef