Ganýmedes
Eftir 1804, Bertel Thorvaldsen

Varðveitt hjá
Listasafn Íslands
Ganymedes var konungssonur frá Tróju og var allra manna fríðastur. Júpíter sendi því örn sinn til að ræna honum og færa hann guðunum á Ólympos þar sem hann ásamt Hebu skyldi skenkja þeim ódáinsvín. Veturinn 1802-4 pantaði Irina Vorontsov, rússnesk greifafrú, fimm höggmyndir hjá Thorvaldsen og skyldi efni þeirra vera úr grísku goðafræðinni, m.a. úr sögunni um Ganymedes. Í fyrri gerð myndarinnar af Ganymedes stóð örninn við vinstri fót hans, en í seinni gerðum úr marmara eins og þeim sem eru í Thorvaldsensafni (keypt þangað 1920 frá Englandi) og í Listasafni Íslands er erninum sleppt. Það eintak sem er í eigu Listasafns Íslands stóð ófullgert í vinnustofu Thorvaldsens þegar hann lést, en síðar var lokið við að höggva myndina í marmara fyrir safn hans. Árið 1922 var verkið selt Johan Hansen aðalræðismanni sem gaf það íslenska ríkinu árið 1927. (B.J. Bertel Thorvaldsen 1770-1844. Sýning á Kjarvalsstöðum í Reykjavík. 1982).
Aðrar upplýsingar
Titill
Verkheiti: Ganýmedes
Annað verkheiti: Ganýmedes réttir bikarinn, Ganymedes rækker skålen,
Enskt verkheiti: Ganymede Offering the Cup
Ártal
Eftir 1804
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: LÍ-7016
Stærð
135 x 0 x 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Aðalskrá
Áletrun / Áritun
Áritun: THORVALDSEN
Gefandi
Gjöf frá Johan Hansen aðalræðismanni í Kaupmannahöfn.
Flokkun
Efnisorð / Heiti
Efnisinntak: Goðafræði
Efnisinntak: Maður
Efnisinntak: Kanna, óþ. notk.
Efnisinntak: Skál, óþ. hlutv.
Efnisinntak: Maður
Efnisinntak: Kanna, óþ. notk.
Efnisinntak: Skál, óþ. hlutv.
Útgáfa / Sería
3 / 3
Heimildir
Matthías Þórðarson, "Ganymedes", Eimreiðin ; 1928; 34 (1): s. 87-91.
