Sparibaukur

1970
Trölla sparibaukur frá Útvegsbankanum. Útvegsbankinn auglýsti fæðingu Trölla í Æskunni í maí 1970. Þar er tilgreint að hann sé finnskur að uppruna og ætli, með hjálp bankans, að safna sér fyrir Hondu. Í síðara tölublaði Æskunnar stakk Trölli svo upp á við börnin að þau slepptu því að reykja, og leggðu í sparibaukinn andvirði eins sígarettupakka á dag — þannig gætu þau safnað sér fyrir umræddri Hondu á einungis tveimur árum.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1970
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2011-69-8
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Sparibaukur