Bali

Samkvæmt Jóni Ólafssyni var Bali á Músarnesi, þar sem nú er tún. Á túnakorti Ketilstaða stendur „Bali var þar lítið vestar ( efst á Músarnesi) Túnið viðlíka stórt , mikið sléttað, en aldrei borið á það í mörg ár, og því ekki mælt, þó er það slegið enn og slétturnar undra loðnar ( Þari mikill borinn undir ( ) þá er byggðin var þar). Túnefni er þar óþrjótandi. Ekkert hús og tættur dottnar í Bala, en standa á Ketilstöðum.“ (Túnakort, Ketilstaðir 1916) "Upp frá Nesinu [Músarnesi] er nú tún, þar var eitt sinn býli, sem nefnt var Bali." (Ö.Br.1). Bali virðist hafa verið afbýli Ketilstaða, lítið vestar,  efst á Músarnesi.

Aðrar upplýsingar

Heimildarmaður: Jón Ólafsson
Titill
Sérheiti: Bali
Safnnúmer
Safnnúmer B: 125660-13
Staður
Fornleifaskráning: Staður: Brautarholt 1, 270-Mosfellsbæ, Mosfellsbær, Kjalarnes, Ísland
Aðfangategund
Heimildir
Örnefnaskrá Ara Gíslasonar yfir Brautarholt. (Ö.Br.1). Túnakort Ketilstaða á Kjalarnesi frá árinu 1916. Vettvangskráning, 2002, SUP, JKÁ.  

Upprunastaður

64°14'30.2"N 21°53'41.0"W