Fornleifar
900 - 1884

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Gatan er gróin, um 2 m breið og er 1 m á dýpt á kafla. Á einstaka stað í götunni er að finna stórgrýti. Austan við Fjárborgar afleggjarann greinist gatan í tvennt og er syðri hlutinn eldri, en borið hefur verið í þann nyrðri. Göturnar sameinast aftur rétt vestan við bratta hraunklöpp en ekki er að sjá að klöppin sé slitin eftir mikla umferð. Austan við Mjóadal austur af Sólvöllum, við áætlaðar atvinnuhúsalóðir á Hólmsheiði er gatan um um 1 m breið og um 70 cm djúp
Gatan er norðan við Suðurlandsveg. Vegurinn er trúlega einn af þremur vegum sem kallaðir eru þjóðvegir um Mosfells- og Gufunessóknir samkvæmt lýsingu Stefáns Þorvaldssonar frá 1855. Þar er leiðinni lýst þannig að hún liggi suðaustan yfir Hellisheiði fyrir sunnan Helliskot (Elliðakot) og norðan Klapparholts og Árbæjar. [1] Örnefnið Vegbrekkur gefur til kynna að þarna hafi verið götur fyrr á öldum. Mikið er af fornum leiðum í nágrenni við Almannadal og taldi Björn Bjarnason bóndi í Gröf að í Almannadal hafi verið vegamót úr fimm áttum fyrr á tímum. Gera má ráð fyrir að þessi leið hafi verið farin þegar mikið vatn var í Hólmsá og neðri leiðin (213-75) ekki fær vegna bleytu og flóða.
Vegur þessi (213-32) var reiðgata til 1970 fyrir þá sem áttu leið úr Reykjavík á Geitháls en lagðist af sem reiðgata þegar núverandi Suðurlandsvegur var gerður og eldri vegur var gerður að reiðvegi.
Gamla gatan er orðin vel sýnileg um 50 m fyrir sunnan Almannadal þar sem nú er búið að planta grenitrjám, sjá mynd 9. Vegurinn upp í Fjárborg hefur verið lagður yfir götuna. Gatan liggur austur eftir Vegbrekkum innri og Vegbrekkum ytri, í Mjóadal hefur verið borið í hana og hún notuð sem akvegur af hernum. Gatan verður aftur sýnileg norðan við Sólvelli og liggur svo samhliða núverandi reiðgötu og hverfur um 100 m áður en komið er að Hafravatnsvegi.
[1] Stefán Þorvaldsson: Lýsing Mosfells- og Gufunessóknar 1855.
Aðrar upplýsingar
Ártal
Aldur: 900 - 1884
Safnnúmer
Johnsen nr.: 213-32
Safnnúmer B: 181149-32
Verkefnanúmer: 1953-1/2823
Stærð
Lengd: 1620 m
Breidd: 1 m
Staður
Fornleifaskráning: Staður: Hólmur, 110-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Heimildir
Örnefnaskrá Björns Bjarnarsonar yfir Grafarholt. (Ö.Graf. 2).
Ísafold 18. jan. 15 árg. 3.tbl., bls. 11.
Kort frá Ameríska hernum 1943, Reykjavík, Iceland, N6405-W2144/5x14.
Stefán Þorvaldsson. (1937-1939). Lýsing Mosfells- og Gufunessóknar 1855. Sýslulýsingar og sóknarlýsingar. Landnám Ingólfs, safn til sögu þess III. Reykjavík. Félagið Ingólfur.
Landnám Ingólfs I-III, bls. 234.
Vettvangsskráning 1. mars. 2018. Anna Lísa Guðmundsdóttir og Margrét Björk Magnúsdóttir.
Upprunastaður
64°5'37.1"N 21°43'7.0"W





