Mannabeinahellir

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
"Fyrir sunnan Gamlagarðinn er Mannabeinahryggur. Þar er langur hellir. Þar fundust bein." (Ö.Hólmur 1:1 og 1:2).Ath!
Í túninu, um 30 m norðan við garðinn, liggur lár hraunhelluás í A - V, og er grasi gróinn. Í hryggnum er hellir, beint í suður frá Gamla garði (fornleif nr. 10). Opið er mjög þröngt. Árið 1912 fór Karl E. Norðdahl, bóndi í Hólmi, inn í hellinn með ljós og fann mannabein þar innst. Nöfnin Mannabeinahellir og Mannabeina- hryggur, sem til eru í örnefnalýsingu, segir Karl hafa til komið eftir þetta, en aldrei hafi hryggurinn verið nefndur þessu nafni. Kvað hann þetta vera eina skiptið sem fundist hafi mannabein þarna.
Aðrar upplýsingar
Titill
Sérheiti: Mannabeinahellir
Safnnúmer
Johnsen nr.: 213-11
Safnnúmer B: 181149-11
Verkefnanúmer: 3456
Staður
Fornleifaskráning: Staður: Hólmur, 110-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Upprunastaður
64°5'25.5"N 21°43'9.8"W