Fornleifar

1700
Garðurinn er hlaðinn úr hraungrjóti, mest um 5–7 steina raðir og 1 m á breidd. Garðarnir eru austur af Hrauntúni (213-23) og norðaustur af dæluhúsi Gvendarbrunna. Jarðabókinni 1703 er Hrauntún síðasti bærinn tilnefndur í Gullbringusýslu (bls. 283-284). Þar segir m.a.: „Hrauntún segja menn að heitið hafi jörð til forna og legið millum Hólms og Elliðavatns. Þar sjást enn nú girðingarleifar eftir og ef grannt er athugað nokkur húsatófta líkindi.“ Megin garðurinn liggur nánast austur- vestur um 400 m Byrjar vestast við Gvendarbrunna, er um 0,3 - 0,5 m breiður og 0,2 - 0,8 m hár. Garðurinn er aðallega úr 0,3 - 0,5 m stórum steinum með einstaka stærri steinum. Við V - enda garðsins er um 10 m langur rani sem liggur að polli. Dyr eru á rananum, um 1,5 m breiðar. Samhliða V - endanum er 55 m langur og 0,2 - 0,3 m hár garður sem tengist höfuðgarðinum og myndar ferhyrning við V - endann. Við miðju garðsins hleypur annar rani í N, um 90 m langur og endar í tveim ferningslaga hólfum, 9 x 3 m. (N -S ) og 7 x 4 m. (N -S ). Síðara hólfið er nú án V - veggjar! Á fyrrnefnda hólfinu eru dyr í NV horni. Garðurinn er ógreinilegur í A - enda og er töluvert mosavaxinn. Innan og utan vatnsverndar girðingar Gvendarbrunna eru hraunhlaðnir garðar. Megin garðlagið liggur frá Gvendarbrunnum til norðausturs langleiðina að Suðurá. Innan girðingarinnar liggja tvö garðlög útfrá honum til norðurs. Annað er stutt 8,7 m á lengd en hitt er 188 m á lengd. Við endann á megin garðlaginu, utan girðingar, liggur garður þvert á hann um 120 m á lengd.

Aðrar upplýsingar

Ártal
Aldur: 1700
Safnnúmer
Johnsen nr.: 213-24 Safnnúmer B: 181149-24 Verkefnanúmer: 3456 Verkefnanúmer: 3456 Safnnúmer A: R-9
Stærð
Lengd: 600 m Breidd: 1 m
Staður
Fornleifaskráning: Staður: Hólmur, 110-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Heimildir
Bjarni F. Einarsson 1995. Fornleifaskrá Reykjavíkur, 1995. Jarðabók ÁrnaMagnússonar og Páls Vídalíns. 3. bindi. Gullbringu- og Kjósarsýsla, bls. 283. Athugasemdir og viðbætur Karls Norðdahl við örnefnaskrá, skráðar af Guðlaugi R.Guðmundssyni. (Ö.Hólmur 3).

Upprunastaður

64°5'12.2"N 21°43'53.0"W